149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1175, um greiðslur lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu til sérfræðinga, frá Söru Elísu Þórðardóttur.

Einnig hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1087, um nefndir, starfshópa, faghópa og ráð á vegum ráðuneytisins, frá Ingu Sæland.