hækkun lífeyris almannatrygginga.
Herra forseti. Í síðasta mánuði var samið við tæplega helming alls launafólks í landinu og óhætt að hrósa verkalýðshreyfingunni og Samtökum atvinnulífsins fyrir ábyrgð og skapandi hugsun við þessa nálgun. Seint og um síðir, mig minnir í annarri atrennu, komu stjórnvöld svo með pakka sem nægði til að hnýta síðasta hnútinn í þessari lotu vegna þess að enn er ósamið við stóran hluta launafólks, m.a. fjölmennar opinberar stéttir, margar stórar kvennastéttir, og þar er viðsemjandinn einmitt ríki og sveitarfélög.
Það er býsna holur hljómur í hugtakinu lífskjarasamningur ef hann nær ekki til allra þegna landsins. Því leikur mér forvitni á að vita hvernig ríkisstjórnin hyggst efna slíkan samning við fjölda fólks sem hefur engan verkfallsrétt og lifir margt á afar lágum launum. Þá á ég auðvitað við 66.000 öryrkja og eldri borgara í landinu. Það eru fjölmörg dæmi um að einstaklingar þurfi að framfleyta sér á 247.183 kr. á mánuði og augljóst að það nægir ekki til að draga fram lífið.
Það liggur fyrir frumvarp Samfylkingarinnar um hækkun lífeyris almannatrygginga til jafns við lægstu launin. Ef öryrkjar og eldri borgarar fá ekki sambærilegar hækkanir munu þessir hópar dragast enn lengra aftur úr og þetta er sumt af fátækasta fólkinu í okkar samfélagi.
Spurningar mínar til ráðherra eru því sáraeinfaldar: Mun lífeyrir taka sömu hækkunum og launataxtar þeirra lægst launuðu? Ef ekki, í hvaða aðgerðir ætlar ríkisstjórnin að ráðast til að bæta kjör þessa hóps? Og í þriðja lagi: Hvenær er von á þessum aðgerðum?