hækkun lífeyris almannatrygginga.
Herra forseti. Ég talaði um að fram undan væru kjarasamningar ríkis og sveitarfélaga við opinbera starfsmenn en ég nefndi svo hvort aldraðir og öryrkjar ættu ekki að fá sömu kjarabætur. Ég held að við hæstv. ráðherra eigum að muna að eldri borgarar þessa lands eru þeir sem skiluðu okkur því samfélagi sem við búum í í dag og eiga rétt á að lifa öruggu lífi síðustu ár ævinnar. Og við getum ekki sætt okkur við það að öryrkjar séu dæmdir til fátæktar, bara ef svo ólánlega vill til að eitthvað gerist, svo ég tali nú ekki um ef þeir fæðast án þess að geta lagt af mörkum með vinnu.
Svo er ekki rétt, hæstv. ráðherra, að aldrei hafi verið horft til þessara hluta vegna þess að 2011 var brugðið út frá því. Þá fengu þessir hópar hækkun strax í kjölfar kjarasamninga. Og ég spyr: Stendur til að gera það aftur?