149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

hækkun lífeyris almannatrygginga.

[10:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Já, það er rétt að við eigum eftir að ljúka kjarasamningum við opinbera starfsmenn og við þurfum að fá góða niðurstöðu í því máli. Það er hins vegar þannig að allir opinberir starfsmenn njóta góðs af aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Svo við tökum skattaaðgerðirnar sérstaklega, þar sem við vorum að bæta í miðað við upphaflegar hugmyndir okkar, eru þær þannig sniðnar að þær gagnast lægst launaða fólkinu mest. Í þeim hópi sem lifir á um 325.000 kr. á mánuði eru öryrkjar mjög fjölmennir og eldri borgarar. Ef við ættum að taka einhverja hópa út sem helst njóta góðs af skattalækkuninni er það fólk á lægstu laununum, það eru öryrkjar og það eru aldraðir. Ríkisstjórnin er að teygja sig sérstaklega til þeirra hópa sem hv. þingmaður ber hér fyrir brjósti.

Ég þarf ekki að láta segja mér að gera þurfi betur við eldri borgara vegna þess að ég held að sá tími í lýðveldissögunni verði vandfundinn þar sem meiri framfarir hafi orðið á kjörum eldri borgara en einmitt undanfarin ár.