149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

sjálfstætt starfandi aðilar í heilbrigðiskerfinu.

[10:44]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið sem ég er að mörgu leyti sammála. Ég fagna því sérstaklega að þetta er ekki einhver viðhorfsbreyting hjá Sjálfstæðisflokknum. Það er ekki að ástæðulausu sem ég tala um viðhorfsbreytingu því að það var fyrir nokkrum mánuðum síðan við fjárlagaafgreiðsluna sem við lögðum fram þessa 200 millj. kr. tillögu vitandi að þetta væri bara tímabundið til að leysa og koma til móts við biðlistana, en allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins höfnuðu því og felldu tillöguna.

Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ríkisstjórnin þarf að koma sér saman um heildstæða stefnu. Ég óska og kalla eiginlega eftir því að sú heildstæða stefna, ekki síst varðandi hjúkrunarheimilin, birtist betur í fjármálaáætlun en ekki síður innan heilbrigðisáætlunar. Það er verið að vinna að henni og við skulum gæta sannmælis um það.

Það sem er brýnt núna er að við getum í rauninni ekki sent út þau skilaboð til fólksins sem er á biðlistum að við þurfum að skoða þetta enn betur. Það er búið að vera að skoða þetta heildstætt. Það er hægt að laga þetta tímabundið núna, grynnka á biðlistum (Forseti hringir.) með því að leita til sjálfstætt starfandi aðila í samfélaginu og fá þannig tækifæri, líka fyrir heilbrigðisráðherra, (Forseti hringir.) til að vinna að sínum málum. Ég hvet hæstv. ráðherra til að tala (Forseti hringir.) eins og hann talaði í svarinu við ríkisstjórnarborðið.

(Forseti (SJS): Forseti minnir á tímamörk, tvær mínútur í fyrri umferð og ein mínúta í seinni. Það gildir um þingmenn og ráðherra.)