fjárframlög til SÁÁ.
Virðulegi forseti. Það var um miðjan desember sl. sem löggjafinn ákvað að veita aukafjárframlag til starfsemi SÁÁ. Við ákváðum líka að veita 276 millj. kr. í aukaframlag til hjúkrunarheimila, þjónustunnar þar. Ég ætla að snúa mér að SÁÁ að þessu sinni, sem hefur verið mér afskaplega hugleikið.
Ég hef ekki tölur á takteinum núna um hversu mörg ungmenni hafa dáið af völdum fíknar það sem af er árinu á meðan þau biðu jafnvel eftir því að komast í meðferð á Vog. Hæstv. heilbrigðisráðherra þekkir kannski þá tölu, ég er ekki með hana, en ég veit að upp á síðkastið hef ég lesið sorglegar fréttir um dauða ungra fíkla.
Ég fékk bréf frá framkvæmdastjóra SÁÁ 27. apríl sl. Ég veit að búið er að semja við Sjúkratryggingar um 100 millj. kr. af þessu fjárframlagi, aukafjárframlagi okkar, sem á að nýta í göngudeildir. Ég hef aldrei almennilega áttað mig á því hvers vegna ekki er byrjað á því að afeitra fólk og koma því í meðferð og síðan í göngudeildarþjónustuna.
Mér finnst þessi forgangsröðun pínulítið öfugsnúin miðað við það að nú á að fækka um 400 sjúklinga í innlögn á Vogi á árinu. Fjármagnið hafði ekki skilað sér 24. apríl þrátt fyrir samninginn.
Ég spyr hæstv. heilbrigðisráðherra: Hefur þetta fjármagn skilað sér frá því 24. apríl? Við erum búin að bíða eftir því ansi lengi að það rati heim. Ef svo er ekki vildi ég gjarnan fá að vita hvað tefur, því að samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef hefur SÁÁ, stjórnendur þar, samviskusamlega reynt að koma til móts við allar þær kröfur sem Sjúkratryggingar Íslands hafa farið fram á í sambandi við að senda öll gögn og allar upplýsingar sem í þeirra valdi stendur til að liðka fyrir því að fá þetta fjármagn.