fjárframlög til SÁÁ.
Virðulegur forseti. Það eru orðin nokkuð regluleg samskipti hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma að hv. þingmaður vitnar í nýfenginn tölvupóst frá SÁÁ um eitt og annað. Það sem ég vil segja í fyrsta lagi er að það er áhugavert að hv. þingmaður vísar ítrekað í samþykkt Alþingis við afgreiðslu fjárlaga um að bæta við 150 milljónum til að styrkja starfsemi göngudeilda SÁÁ. Það er jafn áhugavert að hv. þingmaður sat hjá í þeirri atkvæðagreiðslu og greiddi ekki atkvæði með þessum 150 milljónum. Það er líka áhugavert að þegar hv. þingmaður greiðir ekki atkvæði með þessum 150 milljónum til göngudeildarþjónustu skilji hún vilja þingsins með einhverjum þeim hætti að þessa peninga hafi átt að nota í annað, þ.e. í starfsemi sjúkrahússins Vogs. Ég ætla að biðja hv. þingmann aðeins að gæta að þessu.
Ég vil halda því til haga að Sjúkratryggingar Íslands fara með það verkefni fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda að eiga samskipti við veitendur heilbrigðisþjónustu og það gildir líka um SÁÁ. Þetta ferli er eðlilegur hluti af samstarfi ábyrgra aðila um kaup og sölu á heilbrigðisþjónustu. Þegar það gerist ítrekað að upplýsingar berast ekki með þeim hætti sem þær eiga að berast, þ.e. gögn sem berast Sjúkratryggingum Íslands frá viðkomandi aðila, eru ekki rétt, þá þarf að biðja um þau aftur. Því miður hefur þetta gerst ítrekað í samskiptum SÁÁ og Sjúkratrygginga Íslands.
Ég vænti þess að samskiptin sem þarf að eiga um sölu og kaup á þessari þjónustu geti átt sér stað milli upplýstra og ábyrgra aðila við borð Sjúkratrygginga Íslands, milli SÁÁ og Sjúkratrygginga, en ekki ítrekað hér á milli hv. þm. Ingu Sæland og þess heilbrigðisráðherra sem hér stendur.