149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

raforkumarkaðurinn og þriðji orkupakkinn.

[10:53]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Mig langar fyrst, með leyfi forseta, að lesa úr ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins frá því í fyrra þar sem segir:

„Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.“

Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra hvort hann kannist við þá ályktun og hvort hann hafi jafnvel staðið að samþykkt hennar á sínum tíma. Ég spyr vegna þess að í mars í fyrra urðu nokkrar umræður um þetta mál þar sem hæstv. ráðherra sagði, með leyfi forseta:

„Veltum því fyrir okkur hvað við höfum með það að gera á innri markaði Evrópu að vera að ræða raforkumál sem eru í eingangruðu mengi á Íslandi úti í Brussel. Hvað höfum með það að gera að vera að ræða við önnur ríki Evrópusambandsins raforkumál af eyjunni Íslandi?“

Mér þykja þetta mjög athyglisverðar yfirlýsingar og langar að vita hvort ráðherra er enn sama sinnis, hvort honum þykir jafn út í hött að við séum að ræða, hvað þá heldur að samþykkja, þingmál sem ganga í þá átt sem ráðherra varaði við í fyrra.

Ég geri ráð fyrir að ráðherra styðji málið sem fram hefur komið, þau fjögur mál, vegna þess að þau fóru í gegnum ríkisstjórn. Ég verð að spyrja ráðherra í ljósi ummælanna sem hann viðhafði í fyrra og í ljósi þess hver ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins var í fyrra hvort hann sé enn þá sama sinnis, að þetta sé ekki á dagskrá. Mun hann þá á þeim tíma sem gefst enn í þinginu til að koma í veg fyrir að þau fjögur mál sem hér eru til afgreiðslu fari fram leggjast á sveif með þeim sem vilja koma í veg fyrir það?

Mig langar að fá skýr svör.