149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

raforkumarkaðurinn og þriðji orkupakkinn.

[10:55]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er margt í ályktunum Sjálfstæðisflokksins sem hv. þingmaður gerði rétt í að kynna sér vel. Ég er viss um að ef hann er að hugsa um að skipta um flokk aftur á næstunni er ýmislegt þar að finna sem honum myndi hugnast. Ef hann myndi lesa ræðu mína er ég viss um að hann yrði líka ánægður með margt af því sem þar kemur fram, ef hann hlustaði vel eftir því sem þar kemur fram um hin ýmsu mál.

Varðandi þetta mál sérstaklega ályktaði Sjálfstæðisflokkurinn með þeim hætti að yfirráð yfir íslenskum raforkumarkaði ættu ekki að flytjast til stofnana Evrópusambandsins. Ég tel að þau mál sem liggja fyrir þinginu séu þess eðlis að það sé ekki að gerast, að yfirráð yfir íslenskum raforkumarkaði séu að flytjast til stofnana Evrópusambandsins. Telur hv. þingmaður að það sé að gerast eða hvað? Hvaða stofnanir Evrópusambandsins eru það þá sem eru að fá yfirráð yfir íslenskum raforkumarkaði? Við þurfum að gera greinarmun — og nú er ég að vísa til þess hvernig málið er lagt fyrir þingið — á orkumálum sem hluta af Evrópska efnahagssvæðinu, þar sem raforka hefur frá upphafi verið skilgreind sem vara sem samræma þurfi reglur um, og fjórði hluti samningsins er grundvöllur undir viðskiptum margra innlendra aðila á Evrópska efnahagssvæðinu. Það þarf að gera greinarmun á þessu og síðan hinu sem er raforkustefna í einstaka löndum. Nú er það þannig að við erum ekki bundin raforkustefnu, orkumálastefnu Evrópusambandsins, heldur högum við þeim málum eftir eigin óskum á Íslandi. Við setjum okkar eigin stefnu um orkumál, erum með orkuauðlindir í opinberri eigu og almennt vinnsluna í opinberum fyrirtækjum. Að því leyti til eru raforkumálefni Íslands enn í okkar höndum og verða áfram.