raforkumarkaðurinn og þriðji orkupakkinn.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að svara mér með spurningu. Mig langar að svara þeirri spurningu með orðum hæstv. ráðherra frá því í fyrra. Þá sagði hann, með leyfi forseta, og ég er honum gjörsamlega sammála:
„Það sem ég á svo erfitt með að skilja er áhugi hv. þingmanns“ — sem þá var í viðræðum við ráðherrann — „og sumra hér á þinginu á að komast undir boðvald samevrópskra stofnana. Hvað í ósköpunum liggur mönnum á að komast undir sameiginlega raforkustofnun Evrópu á okkar einangraða landi með okkar eigið raforkukerfi? Hvers vegna í ósköpunum hafa menn áhuga á því að komast undir boðvald þessara stofnana?“
Ég spyr hæstv. ráðherra: Já, hvers vegna í ósköpunum? Hvers vegna í ósköpunum halda menn áfram? Hvað veldur sinnaskiptum hæstv. ráðherra frá því í fyrra? Hvað hefur orðið þess valdandi að hann skiptir svo gjörsamlega um skoðun í þessu máli á þessu ári sem nú er liðið?
Svo vil ég taka það fram að lokum að ég er ekkert óánægður með það sem hæstv. ráðherra hefur fram að færa á hverjum tíma, af því að það kom fram í hans orðum, ég hlusta með athygli í hvert skipti.