raforkumarkaðurinn og þriðji orkupakkinn.
Virðulegi forseti. Það sem hv. þingmaður gat ekki gert í þessari ræðu var að greina frá því hvað það er í fyrirliggjandi þingskjölum sem felur í sér framsal á yfirráðum yfir íslenskum raforkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Það er ástæða fyrir því, vegna þess að það er ekkert í þeim málum sem liggja fyrir þinginu sem gerir neitt slíkt. Það dugar ekki að vísa í ræðu mína í samtali við hv. þm. Þorstein Víglundsson sem hafði miklar athugasemdir við ályktun Sjálfstæðisflokksins frá því í fyrra og eðlilegt var að ég spyrði þingmanninn.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn segir í landsfundarályktun að hann vilji ekki framselja yfirráð yfir raforkumálefnum til evrópskra stofnana, er það tilefni fyrir hv. þingmann til að koma hér upp og hreyfa andmælum? Og ég spurði hv. þingmann: Hvers vegna vill hann færa yfirráð yfir íslenskum raforkumálefni til evrópskra stofnana? Það var spurningin. Ég var í samtali við hv. þingmann sem var að gera athugasemd við landsfundarályktun.
En nú erum við með ákveðin þingmál (Forseti hringir.) og þau fjalla um orkumálefni. Þau taka ekki yfirráð yfir (Forseti hringir.) raforkumálum Íslendinga af okkur og flytja það til Brussel. Það er ekki að gerast.