149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

innkaup ríkisins á hugbúnaði.

[11:03]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Árið 2007 var sett stefna um frjálsan og opinn hugbúnað þar sem fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2010 að við ákvörðun um innkaup skuli gefa slíkum hugbúnaði sömu tækifæri og séreignarhugbúnaði. Einnig segir að stefnt skuli að því að opinberir aðilar verði ekki of háðir einstökum hugbúnaðarframleiðendum og þjónustuaðilum. Þar segir enn fremur að hugbúnaður sem opinberir aðilar láta hanna fyrir sig skuli vera endurnýjanlegur, þ.e. að fleiri en ein stofnun geti notað hann.

Fyrir tæpu ári síðan voru undirritaðir samningar við Microsoft og Advania um hugbúnaðarleyfi fyrir ríkisstofnanir. Í tilkynningu sem fylgdi þeim samningum var talað um 200 millj. kr. sparnað fyrir ríkið á ári. Samningurinn sameinaði 104 mismunandi samninga í einn, sem er ágætiseinföldun.

Nýlega sendi hv. varaþingmaður Pírata, Álfheiður Eymarsdóttir, fyrirspurn til allra ráðherra um kostnað ráðuneyta og stofnana við Microsoft-hugbúnað. Svörin sem hafa borist hingað til gefa ekki vísbendingu um þann sparnað sem fram kom í tilkynningunni vegna samninganna.

Sex ráðherrar hafa svarað fyrirspurninni. Svo virðist sem stofnunum hafi gengið ágætlega að lækka kostnað við hugbúnaðarleyfi undanfarin ár en á milli áranna 2017 og 2018, þegar samningurinn var undirritaður, hækkaði hann um 4%, eða tæplega 11 milljónir. Þær tölur tala sínu máli og sýna ekki þann sparnað sem samningarnir áttu að gefa. Enn fremur fer samningurinn gegn stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað. Því spyr ég ráðherra aftur: Hvernig getur það verið góður samningur fyrir skattborgara?