149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

innkaup ríkisins á hugbúnaði.

[11:04]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég biðst afsökunar á þessu. En já, ég tel alveg sjálfsagt að gerð verði góð grein fyrir því í hverju menn telja sparnaðinn liggja og ég vil að menn gæti sín aðeins á því að reyna að tína innan úr einstökum ráðuneytum í litlum skrefum og safna saman í einhverja heildarmynd. Það er nær að við nýtum þá vinnu sem þegar hefur átt sér stað og sjálfsagt að fjármála- og efnahagsráðuneytið deili því sem við höfum af yfirsýn yfir kostnað að því leytinu til. Það var hins vegar í aðdraganda þessarar samningsgerðar alveg augljóst að í ríkiskerfinu var verið að greiða fyrir fjölmörg leyfi sem voru ekki í notkun. Það var líka verið að greiða á ólíkum töxtum og það var nákvæmlega ekkert samræmi sem lýsir sér í því að við förum úr um 140 samningum niður í einn.

Út frá öllum þeim gögnum sem lágu fyrir framan mig í ráðuneytinu þegar samningurinn var gerður var augljóst að þetta var gríðarlega mikið framfaraskref. Það verður auðvitað að huga líka að magni. Það er ekki bara heildarkostnaðurinn sem segir alla söguna um það hvort við erum að ná fram hagræðingu. En af þessu tilefni mun ég kalla eftir frekari svörum. Ég tel rétt að við ýtum á eftir því að hagræðingin sem lofað var skili sér og að það sé ljóst af samanburði við fyrri ár að þetta sé að þróast í rétta átt.

Varðandi opinn hugbúnað er alltaf matsatriði hvaða leið eigi að fara í þeim efnum. En við erum ekki komin þangað að við treystum okkur að byggja upplýsingakerfi hins opinbera alfarið upp á opnum hugbúnaði.