149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

innkaup ríkisins á hugbúnaði.

[11:06]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Vissulega verðum við að skoða heildarkostnaðinn því að það var í tilkynningu samninganna að þetta myndi lækka heildarkostnaðinum um 200 milljónir á ári. Það er það sem ég er að reyna að gera með því að fá öllum tölunum safnað saman, eða hv. þm. Álfheiður Eymarsdóttir, til þess að fá heildarkostnaðinn. Svarið hjá þeim stofnunum sem ég hef spurt er að aðstæður innan stofnana hafi verið þannig eftir hrunið að búið var að skera mjög mikið við nögl í hugbúnaðarleyfum og einungis þær tölvur sem þurftu hugbúnað voru með hugbúnað, voru með slíkt leyfi. Með tilkomu samninganna höfðu stofnanirnar jafnvel þurft að greiða leyfi fyrir allar tölvur, líka þær sem þurftu ekki á þeim að halda. Það er hitt dæmið, að það voru jafnvel einhver leyfi sem ekki voru í notkun, þar var búið að hagræða eins mikið og hægt var að út af hrunárunum og þeim litlu peningum sem þar var að hafa. Aukinn kostnaður hjá einni stofnun hljóðaði upp á 200 milljónir í aukinn kostnað, (Forseti hringir.) bara út af þessu.