innkaup ríkisins á hugbúnaði.
Virðulegi forseti. Jú, heildarkostnaðurinn skiptir vissulega máli. En það sem ég er að benda á er að við getum ekki bara borið saman kostnað án tillits til magns, fjölda leyfa og annars þess háttar. Það er líka fjölmargt annað mikilvægt virði í samningunum eins og skuldbindingar Microsoft sem tengjast íslenskunni.
Ég tók það fram áðan að af þessu tilefni þá mun ég ganga á eftir því að fá upplýsingar um það hvernig hagræðið af nýjum samningi er að skila sér. En þetta er bara eitt dæmi af mörgum þar sem ég tel að ríkið hafi verið að dreifa kröftunum allt of mikið með því að láta 140 stofnanir hverja um sig gera hugbúnaðarsamninga. Þá vorum við að dreifa kröftunum allt of mikið í ýmsum vöru- og þjónustukaupum sem við höfum tekið til endurskoðunar á undanförnum árum í samvinnu við Ríkiskaup.