ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2018 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2018. Nefndin hefur fjallað um málið en með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta þessa ákvörðun um breytingu á viðauka um fjármálaþjónustu. Það sem er fellt inn í samninginn eru tvær gerðir. Í fyrsta lagi er framseld reglugerð framkvæmdastjórnar ESB 2016/438 frá 17. desember 2015, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar skyldur vörsluaðila. Í öðru lagi er það framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar, ESB, 2016/1212 frá 25. júlí 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar staðlaðar málsmeðferðir og form fyrir framlagningu upplýsinga í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65.
Það er sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara og var hann veittur til 24. september 2019 en framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Í reglugerðinni er kveðið á um nánari útfærslu á tilteknum ákvæðum tilskipunarinnar og um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum er varðar verðbréfasjóði og með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á þeirri tilskipun með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins. Reglugerðin fjallar einkum um ferla við veitingu upplýsinga frá eftirlitsaðila innan aðildarríkja, m.a. til Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar. Gert er ráð fyrir að reglugerðirnar verði innleiddar með setningu reglugerða. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt og undir það rita sú sem hér stendur, Áslaug Sigurbjörnsdóttir, Logi Einarsson, Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Smári McCarthy og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.