149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2019 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

658. mál
[11:26]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Við höldum hér áfram með þingsályktunartillögur er lúta að fjármálaþjónustunni, þ.e. breytingum sem gerðar hafa verið á regluverki Evrópusambandsins og við höfum tekið upp í EES-samninginn.

Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um þingsályktunartillögu sem staðfestir ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 21/2019, um breytingar á IX. viðaukanum við EES-samninginn er lýtur að fjármálaþjónustu.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneytinu og Ernu Hjaltested, Gunnlaug Helgason og Mörtu Margréti Rúnarsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, sem tekin var 8. febrúar 2019, um breytingu á umræddum viðauka er varðar fjármálaþjónustuna og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur.

Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 9. ágúst 2019. Framsetning tillögunnar telst að mati hv. utanríkismálanefndar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Reglugerðinni er ætlað að lækka kostnað söluaðila og neytenda, bæta samkeppni og stuðla að samþættingu greiðslukortamarkaða þvert á landamæri innan Evrópu. Í reglugerðinni er sett hámark á milligjöld sem færsluhirðar greiða kortaútgefendum vegna notkunar neytanda greiðslukorta, 0,2% af fjárhæð greiðslu vegna debetkorta og 0,3% vegna kreditkorta. Þá er kveðið á um bann við svæðisbundnum takmörkunum í leyfissamningnum eða í reglum um greiðslukortakerfi og mælt fyrir um aðskilnað greiðslukortakerfa og vinnsluaðila, aukin úrræði korthafa og söluaðila til að ákveða greiðslumáta, sundurliðun þjónustugjalda, færsluhirða og upplýsingagjöf færsluhirða til söluaðilanna.

Innleiðing reglugerðarinnar kallar á lagabreytingar og hefur fjármála- og efnahagsráðherra lagt fram frumvarp til innleiðingar á gerðinni. Það frumvarp er mál nr. 636 á þessu þingi og hefur verið tekið til umfjöllunar í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og liggur nú fyrir nefndarálit hennar. Það er skemmst frá því að segja að það virðist vera mikil lukka með þetta frumvarp, enda er hér fyrst og fremst um bætta neytendavernd að ræða.

Undir nefndarálit utanríkismálanefndar skrifa, ásamt mér Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður nefndarinnar, Gunnar Bragi Sveinsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Logi Einarsson, Smári McCarthy, Ari Trausti Guðmundsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.