149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2019 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

659. mál
[11:29]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Eins og ég sagði áðan erum við hér með pakka er lýtur að breytingum á löggjöf utan um fjármálaþjónustu og álit utanríkismálanefndar um þessa þingsályktunartillögu er varðar ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2019, um breytingu á IX. viðaukanum. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneytinu og Ernu Hjaltested, Gunnlaug Helgason og Mörtu Margréti Rúnarsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2019 frá 8. febrúar 2019 um breytingu á IX. viðauka, er lýtur að fjármálaþjónustu, við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 909/2014 frá 23. júlí 2014 um bætt verðbréfauppgjör í Evrópusambandinu og um verðbréfamiðstöðvar, og um breytingu á tilskipunum 98/26/EB og 2014/65/ESB og reglugerð (ESB) nr. 236/2012.

Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 9. ágúst 2019. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Reglugerðinni er ætlað að auka öryggi og aga í verðbréfaviðskiptum. Í henni felast reglur um bætt verðbréfauppgjör og samræmdar kröfur til verðbréfamiðstöðva. Starfandi verðbréfamiðstöðvar þurfa að sækja um nýtt starfsleyfi og geta boðið þjónustu sína yfir landamæri innan EES-svæðisins.

Innleiðing reglugerðarinnar kallar á lagabreytingar og er fyrirhugað að fjármála- og efnahagsráðherra leggi á yfirstandandi löggjafarþingi fram frumvarp til innleiðingar á gerðinni. Það mál er á málaskrá hæstv. ráðherra en hefur ekki enn verið lagt fram. Ég geri ráð fyrir því að það komi þá fram á haustþinginu eins og mörg af þeim málum sem við ræðum hér í dag.

Undir þetta nefndarálit skrifa ásamt mér Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður nefndarinnar, Gunnar Bragi Sveinsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Logi Einarsson, Smári McCarthy, Ari Trausti Guðmundsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.