ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn og reglugerð (ESB) 2017/1129.
Virðulegur forseti. Þetta er þá þriðja og jafnframt síðasta nefndarálitið sem ég mæli fyrir í dag. Þau lúta öll að fjármálaþjónustunni. Undir liggur þingsályktunartillaga um heimild til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðaukanum er fjallar um fjármálaþjónustu við EES-samninginn og á að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1129/2017 varðandi lýsingu sem birta skal við útboð verðbréfa á almennum markaði eða þegar þau eru tekin til viðskipta.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneytinu og Ernu Hjaltested, Gunnlaug Helgason og Mörtu Margréti Rúnarsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd fyrirhugaða ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og fella inn í samninginn reglugerðir Evrópuþingsins er lúta að þessu. Þær fjalla um lýsingar sem birta skal við útboð verðbréfa á almennum markaði eða þegar þau eru tekin til viðskipta, og um niðurfellingu á tilskipun nr. 71 frá árinu 2003.
Reglugerð þessi, nr. 1129/2017, kemur í stað núgildandi regluverks um lýsingar. Gerðin kveður á um ákveðnar breytingar á samræmdum reglum frá fyrri regluverkum en hún felur einnig í sér kerfi tilkynninga eftirlitsstjórnvalda á staðfestum lýsingum til annarra eftirlitsstjórnvalda innan ESB vegna viðskipta yfir landamærin, sem á enskri tungu nefnast „passporting“. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja fjárfestavernd og skilvirkni markaða samhliða því að bæta innri markaðinn varðandi fjármagn.
Greiða á aðgengi fyrirtækja að fjármögnun, sérstaklega lítilla og meðalstórra fyrirtækja, með ýmiss konar einföldun á regluverki og stjórnsýslumeðferð. Tillögunni var vísað til nefndarinnar 19. mars síðastliðinn og reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn 29. mars síðastliðinn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2019, um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn er varðar fjármálaþjónustu. Í ljósi þessa telur nefndin rétt að leggja til breytingu á tillögunni svo vísað sé til ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar með hefðbundnum hætti.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 30. september 2019. Innleiðing reglugerðarinnar kallar á lagabreytingar sem eru í forgangi af hálfu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Fyrirhugað er að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram frumvörp til innleiðingar á gerðinni á haustþingi 2019. Nefndin leggur því til að tillagan verði samþykkt með þeirri breytingartillögu sem getið er um í nefndarálitinu.
Hún orðist svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2019 [frá 29. mars 2019] um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 frá 14. júní 2017 um lýsingu sem birta skal við útboð verðbréfa á almennum markaði eða þegar þau eru tekin til viðskipta og um niðurfellingu á tilskipun 2003/71/EB.“
Fyrirsögn tillögunnar er að hún verði tillaga til þingsályktunar um staðfestingu á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2019, um breytingar á IX. viðaukanum (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. Þetta eru eingöngu tæknilegar breytingar í ljósi þess að búið er að taka málið upp í sameiginlegu EES-nefndinni frá því að það var lagt fram í upphafi.
Undir þetta nefndarálit skrifa ásamt mér, Bryndísi Haraldsdóttur; Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir formaður, Gunnar Bragi Sveinsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Logi Einarsson, Smári McCarthy, Ari Trausti Guðmundsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Virðulegur forseti. Ég sé að það er bullandi áhugi á því að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara þegar kemur að svona máli í þingsal.