149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

staðfesting ríkisreiknings 2017.

414. mál
[14:54]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Bara örstutt um þetta innleiðingarferli sem við erum í — sem við eigum ekkert að vera í af því að lögin eru eins og þau eru. Það eru nokkrar undanþágur frá því hvenær eigi að byrja að gefa út ársskýrslur og ýmislegt svoleiðis í lögum um opinber fjármál, sem tefja það hvenær hitt og þetta á að gerast. En það er mjög lítið um hvenær við eigum að klára ýmis önnur atriði. Við erum í raun komin fram hjá öllum þeim dagsetningum. Við eigum í rauninni að hafa lagt að baki allar þær dagsetningar sem mætti kannski skilja sem innleiðingarferli.

Jú, þetta er fyrir 2017, þannig að á þeim tíma voru vissulega einhverjar dagsetningar í gildi hvaða innleiðingarferli varðar en aðrar ekki.

Þegar allt kemur til alls, eins og hv. þingmaður sagði, er það skýrleikinn sem er áhugaverðastur í þessu. Mér finnst hann skorta. Ábendingar komu fram um að hann verði að vera leiðarljósið fram á veginn.

Á sama tíma erum við sem sagt með undirskrift Ríkisendurskoðunar sem segist ekki búast við að geta undirritað ríkisreikning næstu tveggja ára, þ.e. 2018 og 2019.

Ég kvartaði pínulítið yfir því að Ríkisendurskoðun kom ekki með lista um það hvað vantaði. Þá væri hægt að fara í betrumbætur á nákvæmlega því, svo það væri líklegra að það mundi vera skilað greinargóðri greiningu og áliti frá Ríkisendurskoðun.

Þannig er einhver togstreita um það hvort innleiðingartímabilinu sé lokið hjá ráðuneytinu en (Forseti hringir.) líka hvort að innleiðingarferlið sé tilbúið og komið hjá Ríkisendurskoðun sjálfri, að hún gæti farið yfir ríkisreikning samkvæmt nýjum lögum á réttan hátt.