149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

staðfesting ríkisreiknings 2017.

414. mál
[14:58]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er náttúrlega Alþingi sem samþykkir þessi lög og hefur væntanlega ákveðnar væntingar um hvernig ferlið eigi að virka þegar allt kemur til alls. Það hefur tvímælalaust verið reynt að eiga í ákveðnum samskiptum, vissulega hafa ráðuneyti og Ríkisendurskoðun komið á fund nefndarinnar, um hvernig sé best að koma lögum um opinber fjármál til skila, til bæði þingsins og annarra aðila, hagaðila og borgara landsins.

Á sama tíma eru þessir GFS og IPSAS-staðlar og ýmislegt svoleiðis tiltölulega ólæsilegir fyrir alla. Það eru tæknilegar útfærslur á fjárlögunum sem gagnast alveg örugglega gagnanördum hingað og þangað. Ég er ekki alveg inni í þessum parti „gagnanördunarinnar“ en alla vega kann ég að meta hana. En þá finnst mér einmitt tvímælalaust vanta þessa eldri framsetningu. Það má alveg gera hana eitthvað straumlínulagaðri, en bara svo hún sé læsilegri. Að það sé grunnkjarni, alveg frá fjármálastefnu í fjármálaáætlun og í fjárlögum, í ársskýrslu ráðherra og núna inn í ríkisreikninginn, þegar við klárum hann. Að það sé aðgengilegt gagnsæi, eins og er hluti af grunnþáttunum. Að það sé í heiðri haft þegar verið er að vinna með fjárlögin.

Því að við eigum að vera að samþykkja og erum með fjárveitingavaldið og við verðum að geta skilið hvað við erum að samþykkja að veita fjármagn í. Þegar allt kemur til alls er það bara mjög óaðgengilegt.