staðfesting ríkisreiknings 2017.
Herra forseti. Þetta hafa verið gagnlegar umræður. Ég þakka hv. framsögumanni Haraldi Benediktssyni fyrir yfirferðina. Við erum bæði búin að fylgjast með mótun þessara laga frá því að við komum á þing og það verður að segja að þetta hefur óneitanlega ekki verið þrautalaus fæðing og við erum ekki endilega sátt við gengi, framsetningu eða allt sem snýr að lögum um opinber fjármál. Það er enn þá mjög margt sem við þurfum að lagfæra þannig að þetta verði á endanum eins og við vildum hafa það. Ríkisreikningur er hluti af þeirri vinnu. Mér hefur fundist meira koma í ljós en maður átti von á þegar verið var að vinna textann að lögunum og við vorum að fara í gegnum hann, eins og reyndar kom fram á fundi ríkisendurskoðanda með fjárlaganefnd. Það er gjarnan þannig að þegar maður les texta á blaði þá virka hlutirnir kannski framkvæmanlegir en svo þegar til kastanna kemur þá getur það reynst flókið. Það hefur orðið svo m.a. í þessu tilfelli enda hafa gríðarlega miklar breytingar átt sér stað. Eins og hér hefur komið fram er verið að innleiða staðla án undantekninga og litla örþjóðin Ísland ætlar að standa mjög framarlega í því. Þótt við séum lítil þá er engin smávinna fólgin í því að leggja mat á allar okkar eignir, hvort sem það eru vegir, fasteignir eða lönd eða hvað það nú er. Um leið og þetta er búinn að vera mjög lærdómsríkur ferill þá verðum við að horfast í augu við annmarkana sem við höfum rekist á.
Ferlið sem við vorum í með lokafjárlögum var líka gagnrýnt af því að þá erum við alltaf að fjalla um eitthvað sem löngu er liðið og þannig var það með lokafjárlög. Eitt af því sem þarf að gerast er auðvitað að ríkisreikningur sé nær í tíma, komi fram mun fyrr. Það er bagalegt að vera að vinna með ríkisreikning fyrir árið 2017 þegar við erum komin fram á mitt ár 2019. Það er í sjálfu sér lítið sem við gerum með það, alveg eins og var í rauninni með lokafjárlögin. Ríkisreikningur er að taka við þessu hlutverki.
Eins og hér kom fram af hálfu formanns fjárlaganefndar þá snýr þetta mál svolítið að flutningi fjárheimilda milli ára á málefnasviðum og málefnaflokkum en ekki að hverjum og einum ríkisaðila. Það að setja ríkisreikning fram í fyrsta skipti þar sem hann er nær fyrirtækjaframsetningu en áður var og að rekstrarfjármunir séu núna eignfærðir og afskrifaðir í samræmi við endingartíma eins og gert er í fyrirtækjum í stað þess að gjaldfærast að fullu, er mjög mikil breyting og eitthvað sem tekur tíma, eðli máls samkvæmt. Eignakaupin eru að eignfærast og í þessu frumvarpi er óskað eftir heimild Alþingis til að færa á milli í rekstrarframlagi og fjárfestingarframlagi og svo gjaldfæra afskriftir ársins. Þetta erum við að innleiða. Ég man þegar við í fjárlaganefnd vorum að hlusta á tal um IPSAS og GFS-uppgjör, maður varð hálfringlaður og það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt, ég man að við fengum heilu doðrantana um þetta. Það var talað um að þetta ætti að verða betra, meira upplýsandi og skýrara og við erum alltaf að kalla eftir því. Við sem höfum verið að vasast í þessu frá því í árdaga þessara laga, þegar þau urðu til, erum rétt að ná utan um það, finnst mér alla vega, hvernig þetta kemur til með að virka.
Það er auðvitað bagalegt að það er erfitt að bera saman uppgjör nú og verður ekki hægt að gera með eðlilegum hætti alveg strax. Hér hefur verið rætt um að ríkisendurskoðandi áriti ekki ríkisreikninginn eða öllu heldur gefi ekki sérstakt álit á því hvort hann gefi glögga mynd eins og venja er til. Þá finnst mér líka ástæða til að nefna það, eins og er svo sem sagt hér í einni setningu, að Ríkisendurskoðun leggur til að Alþingi staðfesti reikninginn. Ég spurði um það þegar þeir komu á okkar fund hvort þeir hefðu áritað ef gert hefði verið upp á gamla mátann. Það var svo. Það væri gott að hafa hvort tveggja meðan innleiðingarferlið gengur yfir eins og hér var reifað og væri að mínu mati gagnlegt en ég átta mig á því líka að það er gríðarleg vinna og það var sagt á þessum fundi okkar að þá hefði þetta dregist enn frekar. Það er ekki sérstaklega gott. Hvorugt er eiginlega gott.
Hér erum við með þetta fyrir framan okkur og mér finnst ábendingar nefndarinnar góðar og umræðan í nefndinni hefur verið mjög góð um þessi mál. Við höfum verið einhuga um hvað það er sem við þurfum að gera betur af því að öll viljum við að þetta sé sett fram þannig að allir skilji og að ríkisreikningur gefi sem besta mynd á hverjum tíma.
Hér hefur verið áréttað að nefndin hefur kallað eftir viðbótarupplýsingum, bæði frá ráðuneytinu og um þessar mismunandi uppgjörsaðferðir og samanburð á heildarafkomu ríkissjóðs miðað við GFS-staðal af því að það kom svo í ljós að uppgjör Hagstofunnar er ekki alveg sambærilegt við uppgjör fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Þess vegna leggur nefndin til, eins og hér hefur verið komið inn á, að yfirlit sem sýni báða staðlana og gerir grein fyrir þeim mismun sem þar kemur fram, verði framvegis lagt fram um leið og reikningurinn.
Eins er það með árslokastöðuna. Við höfum fjallað einmitt um árslokastöðu í gegnum lokafjárlög fram til þessa á hverjum tíma, þ.e. þetta með að fella niður eða fella ekki niður, hvað má taka með yfir og hvers vegna o.s.frv. Við kölluðum eftir skýringum hvað það varðaði, það skipti ekki máli hvort staðan var jákvæð eða neikvæð heldur vildum við bara vita ef hún var yfir 4% sem hefur verið gegnumgangandi viðmið í fjöldamörg ár. Þá kom fram, eins og við höfum svo sem orðið vör við, alla vega í þessi ár sem ég hef setið í fjárlaganefnd, að það þyrfti að bæta áætlanagerð mjög víða. Ég ætla ekki að segja að það hafi ekki áunnist töluvert. Mér finnst við hafa séð breytingar hjá ráðuneytunum, hjá stofnunum sem ráðuneytin hafa þá fylgt eftir að væri gert. Ég held að þetta vinnist allt þótt sumt fari hægar en annað og maður myndi gjarnan vilja sjá hlutina fara hraðar. Þetta er eitt af því sem við í nefndinni þurfum að halda áfram að fylgja eftir. Það þarf að fækka þeim liðum sem eru felldir niður um hver áramót. Það á að vera þannig að stofnanir ríkisins geti áætlað starfsemi sína innan fjárheimilda þannig að ekki sé farið fram úr þeim.
Við erum auðvitað búin að vera með vandræðabörn í mjög mörg ár sem eru m.a. sjúkratryggingar, málskostnaður í opinberum málum og fleiri sem hafa verið verulega umfram. Við erum ekki að tala um neina smáaura þar. Vonandi er betri árangur að nást og mér hefur heyrst það á ráðuneytunum að staðan gefi alla vega til kynna að menn séu að ná betur utan um þetta. Þess vegna er auðvitað vont að í þessu sambandi átti samkvæmt 67. gr. laga um opinber fjármál, varðandi flutning fjárheimilda milli ára, að vera löngu búið að birta reglugerð. Við ítrekum í þessu nefndaráliti að það verði gert og ráðuneytið hlýtur að taka það til sín.
Því miður eru of fáir sem hafa nennu, vil ég segja, til að hlusta á það sem viðkemur fjármálum ríkisins hér í þingsal. Ég man þegar ég kom fyrst inn sem varaþingmaður þá sat ég hér ein með fyrrverandi hv. þm. Ásbirni Óttarssyni. Hann var í pontu og ég sat og hlustaði eins og varaþingmenn gera gjarnan, eru duglegir að sitja og hlusta. Ég sat reyndar í fjárlaganefnd en alla tíð síðan hefur mér fundist of lítill áhugi fyrir því að fylgjast með umræðu almennt um fjármál ríkisins.
Ég þarf ekki að lengja þetta mál mikið. Nefndin ætlar að fylgja skýrslunni eftir og gera grein fyrir þeim svörum sem við höfum verið óska eftir, höfum fengið svör við og eigum eflaust eftir að óska eftir viðbótargögnum. Við munum draga það saman og skila því til þingsins. Ég hef líka sagt það og það hefur svo sem verið ámálgað af fleirum að við þyrftum að halda vinnufund eða ráðstefnu, ég veit ekki hvað við viljum kalla það, málþing eða eitthvað slíkt, um lögin. Ég myndi vilja að það yrði á næsta ári. Þá er ein og sama ríkisstjórn búin að leggja fram sína stefnu og leggja fram fjármálaáætlun tvisvar sinnum, búin að leggja fram í raun þrenn fjárlög, við farin að sjá ársskýrslur ráðherra, farin að sjá mynstur og hvað er það sem við þurfum að gera betur og hvað hefur tekist vel. Þetta er eitthvað sem við í fjárlaganefnd þurfum að taka þátt í og fjármálaráðuneytið sem hefur auðvitað séð um þessa innleiðingu og líka fleiri þingmenn. Við finnum það að margir þingmenn upplifa það þannig að búið sé að taka völdin af Alþingi með nýju lögunum, við fáum litlu ráðið o.s.frv. Kannski verðum við þá líka búin að fá næsta ríkisreikning til að staðfesta. Núna þegar við erum búin að ganga í gegnum þetta ekki bara einu sinni heldur ríflega tvisvar þá þyrftum við að fara vel í þessa vinnu. Það eitt og sér að vinna þetta í fjárlaganefnd finnst mér ekki duga til því að það vantar þetta fýsíska samtal sem myndast á svona vinnufundum eða málþingum eða hvað við myndum kalla þetta og fleiri komi að borðinu og geti sagt hvað það er sem betur mætti fara.
Virðulegi forseti. Ég þakka nefndinni fyrir samstarfið og framsögumanni fyrir þessa góðu samantekt sem hér liggur undir og vona að við verðum með styttri skýrslu næst eins og hér er bent á.