staðfesting ríkisreiknings 2017.
Virðulegi forseti. Ég er með athugasemd um ferli laga um opinber fjármál yfirleitt. Ég tel að verið sé að reyna að fara eftir lögum um opinber fjármál en það tekst ekki, m.a. af því að ekki er byrjað á réttum stað, þ.e. í samskiptum stofnana við ráðuneyti varðandi verkefnalista, forgangsröðunarlista, árangurstengingu, sem nær síðan alla leið inn í fjármálastefnu eða fjármálaáætlun. Það er einhver hindrun þar. Ég fæ alla vega þær upplýsingar að margar stofnanir, kannski ekki allar en einhverjar, sendi forgangsraðaða lista sína, sem jafnvel eru kostnaðarmetnir, en að þær upplýsingar ná ekki inn í fjármálaáætlun. Það eru gögn sem okkur þingmenn vantar til að leggja mat á hvort upphæðir sem lagðar eru til í fjármálaáætlun muni duga fyrir þeim verkefnum sem lögð eru til eða ekki, samanber stefnu um loftslagsáætlun. Við höfum ekki hugmynd um hvort sá peningur sem settur er í hana dugi fyrir þeim aðgerðum sem eru lagðar fram, eins og með margt annað. Þetta smitar alla leiðina inn í ríkisreikninginn, þegar vantar upp á þann anda sem lög um opinber fjármál eiga að ná fram, að fjárlögin séu árangurstengd. Ef það ferli stoppar einhvers staðar, ef kostnaðarmatið dettur út sem og tenging við verkefnin og ávinninginn sem á að nást af þeim, er ekki hægt að gera grein fyrir því í fjármálaáætlun, þar sem það á að byrja. Það er heldur ekki hægt að gera grein fyrir því í fjárlögunum eða í ársskýrslum ráðherra og hvað þá í ríkisreikningi þegar á að loka upphæðinni og segja: Þetta var það sem var klárað með.
Eitt af vandamálunum sem koma berlega í ljós í staðfestingu ríkisreiknings 2017 er hraðinn eða skortur á honum. Við erum að klára staðfestingu ríkisreiknings 2017 um mitt ár 2019. Það er algjörlega nauðsynlegt að þau gögn sem um ræðir, fjárlagagögn sem koma úr fjármálakerfum, séu aðgengileg miklu fyrr. Ég kaupi ekki athugasemdir um að það sé gríðarleg vinna. Þetta á ekki að vera handavinna. Þetta er allt í tölvukerfum og það á að vera hægt að keyra tölurnar út eftir pöntun. Þarna virðist vanta að mánuðum sé lokað, ársfjórðungum sé lokað. Það líður allt of langur tími þangað til að mánuðum, ársfjórðungum, helmingi árs eða árinu er lokað bókhaldslega séð, til þess að hægt sé að gera upp lokatölurnar. Þetta er eitthvað sem ætti klára innan mánaðar í hverju tilviki fyrir sig. Og hvernig er það hægt? Það getur vel verið að einhverjir segi að það sé ekki hægt en þá verðum við að komast þangað. Kannski er hægt að vera með hálft uppgjör eða eitthvað því um líkt til að byrja með, þar sem vantar nokkra reikninga til eða frá í fyrsta uppgjöri, til að hægt sé að sjá myndina birtast aðeins. Þá sjáum við líka eftir því sem líður á og þegar lokauppgjör kemur hversu miklu munaði. Hvar eru vandamálin? Hvað stendur út af í ferlinu? Eftir hverjum erum við að bíða? Þannig fengjum við jafnt og þétt upplýsingar um það sem verið er að gera með þær fjárheimildir sem við samþykkjum á Alþingi, frekar en tveimur árum seinna eða einu og hálfu ári seinna.
Þá örstutt varðandi reglugerð um flutning fjárheimilda. Eitt af lykilatriðunum í lögum um opinber fjármál er flutningur fjárheimilda milli ára, ekki að hætta niðurfellingum eða fjáraukalögum í lok árs o.s.frv. heldur ef fjárlagaliður er í plús eða mínus er gert ráð fyrir ákveðnum aðgerðum hjá ráðherra til að útskýra af hverju eigi að flytja fjárheimild yfir á næsta ár ellegar falli hún niður. Það þarf ekki neinar reglugerð til að fara eftir því, þetta bara gerist. Ef setja á reglugerð um að fjárheimildir færist sjálfkrafa er það hægt, þá þarf ekki neina útskýringu, þá væri bara hægt að vísa í reglugerðina. En annars á að útskýra af hverju á að færa fjármuni yfir á næsta ár. Þannig eru lögin eins og er. Reglugerð gæti búið til þægilegra ferli fyrir það en þangað til hún er komin á að útskýra hverja einustu færslu. Ég get alveg skilið að það sé mikil vinna en ef við krefjumst þess að ráðuneytin fari eftir lögunum og það er svona rosaleg vinna ætti að fara í að klára að gera slíka reglugerð.
Við getum alveg krafist þess að ráðuneytin fari eftir lögunum með því að standa dálítið föst á því að ekki sé boðlegt að vinna þetta svona og sagt: Nei, þið þurfið að koma með útskýringar samkvæmt lögunum. Ef þið viljið ekki útskýra þurfið þið að setja almenna reglu í reglugerð. Þangað til þið eruð búin að útvega þá reglugerð þurfið þið að útskýra þetta lið fyrir lið.
Það er okkar ábyrgð, okkar frumkvæði að standa í lappirnar gagnvart ráðuneytunum þegar kemur að þessu. Það á við allt ferlið, finnst mér, bæði um forgangsraðaða listann sem mér finnst allt byggja á, upplýsta ákvörðun um það af hverju eitthvert málefnasvið kostar þetta mikið; af því að hérna erum við með forgangsraðaðan lista þar sem hvert atriðið kostar þetta og ávinningurinn af því er þessi og því góð hugmynd að fara í verkefnin, af því að ávinningurinn er bæði fjárhagslegur og samfélagslegur. Svo væru ýmsir aðrir mælikvarða sem við legðum mat á, byggðasjónarmið o.fl.
Ef við höfum ekki þennan lista og ef við höfum ekki kostnaðarmatið — sem er ekki enn þá komið inn í þá fjármálaáætlun sem við erum að vinna með, það er ekki enn þá komið kostnaðarmat á verkefnin, við erum ekki enn með forgangsraðaða listann sem allt byggir á — þá skemmir það allt í kjölfarið. Ársskýrslurnar verða tiltölulega gagnslausar. Þar á ráðherra að gera grein fyrir því hvernig tókst til með stefnu stjórnvalda en ef við vitum ekki hvað stefna stjórnvalda kostar eða hvaða ávinningi er búist við af stefnu stjórnvalda er ekki hægt að segja: Við náðum markmiðunum. Það eru líka markmið og mælikvarðar inni í stefnunni og við vitum alveg hversu ónákvæmt það er í mörgum tilvikum.
Heilbrigðisráðuneytið montaði sig af því hversu góða mælikvarða það var með á ýmis lyf og aðgengi að lyfjum en á sama tíma og það stóðst alla mælikvarða, náði öllum markmiðum eru fréttir um að fólk fái ekki lyf. Það er lyfjaskortur. En mælikvarðarnir mældu ekki hvort fólk væri að fá lyf heldur hversu mörg lyf voru útgefin. Það kemur því ekkert við hvort fólk fái lyfið í hendurnar eða ekki.
Þetta er áskorun okkar. Þetta eru þær reglur sem við settum framkvæmdarvaldinu að fylgja. Að mínu áliti eru ráðuneytin og stofnanirnar dálítið föst í gamla laginu enn þá og kannski einhverjir þingmenn líka, af því að þannig höfum við gert þetta í langan tíma. Það er erfitt að bregða út af og breyta hefðum, breyta því hvernig höfum gert þetta áður. Það er alls ekki sjálfsagt, langt frá því.
Ég tel að þingið þurfi að standa í lappirnar gagnvart því að við förum rétta leið í þessu, förum leiðina sem lög um opinber fjármál setur okkur og við settum okkur sjálf og ráðuneytunum. Það er hverjum augljóst sem fer í gegnum fjármálaáætlun, fjármálastefnu, ársskýrslurnar, fjárlögin o.s.frv. að ekki er farið eftir lögum um opinber fjármál í einu og öllu og í rauninni ekki unnið í anda þeirra eða að heildarmarkmiði þeirra. Það sýnir sig bæði í ríkisreikningnum núna og þeim skilaboðum sem ríkisendurskoðandi sendir frá sér varðandi næstu ríkisreikninga, hann veit nú þegar að hann getur ekki kvittað undir þá reikninga af því að ekki var búið að ljúka innleiðingunni þrátt fyrir að lögin væru skýr.
Það er ákveðin hvatning til að fara í alla vega tvennt. Númer eitt er að fá kostnaðarmat, fá forgangsraðaða listann, fá kostnaðarábatagreininguna sem fjármálaráð hefur ítrekað hvatt okkur til að vinna með. Númer tvö er vinnuhraðinn, að klára og loka mánuðum og ársfjórðungum og árum mikið fyrr, að við séum ekki að fá 2017 árið 2019. Ef við lögum þetta tvennt erum við miklu nær því að geta stundað eðlilegt eftirlit með framkvæmd fjárlaga. Þá erum við miklu nær því að geta sett stefnu, því að það að loka ársfjórðungum og árum svona seint hefur tvímælalaust áhrif á stefnu næsta árs. Það er ekki hægt að taka saman allar upplýsingarnar, af því að þær vantar, þegar unnin er stefna til framtíðar. Það er ákveðin óvissa til staðar og ekki hægt að taka mið af því að hlutirnir geti farið á annan veg en búist var við þegar stefnan fyrir næsta ár eða næstu fimm ár er sett. Ef við klárum ekki allan grunninn og byggjum á þeim staðreyndum og þeirri stöðu sem er uppi í raun og veru, en við vitum ekki hver er, getum við ekki unnið stefnuna eins vel og við vildum.
Ég held að þetta tvennt, að klára forgangsraðaða listann, að það komi í næstu fjármálaáætlun, og að vinna að því að ráðuneyti og stofnanir geti lokað bókhaldinu sínu hraðar, myndi breyta gríðarlega miklu og sé algjört lykilatriði til þess að við fáum að lokum ríkisreikning sem við getum auðveldlega kvittað undir og skilið.