opinber innkaup.
Hæstv. forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber innkaup, markviss innkaup, keðjuábyrgð og fleira, og nefndarálit hv. fjárlaganefndar. Ég vil byrja á því að þakka framsögumanni nefndarinnar, hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, fyrir greinargóða framsögu og í sjálfu sér er ekki miklu að bæta við þá ítarlegu framsögu og greinargerð sem hv. þingmaður fór hér yfir.
Ég vil þó koma frekar inn á aðallega tvennt, er varðar keðjuábyrgð og svo skipulag innkaupa sem snýr að þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu, sem er sannarlega ætlað að bæta úr nokkrum atriðum sem komið hafa fram eftir heildarendurskoðun á opinberum innkaupum sem fór fram árið 2015 og tók gildi frá og með ársbyrjun 2016. Markmiðið er að gera innkaup hagkvæmari og skilvirkari en verið hefur. Gildissvið opinberra innkaupa var aukið með breytingunni 2016 og nú er ástæða til að skerpa á nokkrum þáttum þeirra og lagt er upp með það í þessu frumvarpi, til að stuðla að aukinni framleiðni í opinberri þjónustu til hagsbóta fyrir notendur, starfsmenn og skattgreiðendur.
Aðeins að keðjuábyrgðinni, virðulegi forseti. Hér er í samræmi við stefnu hæstv. ríkisstjórnar um innleiðingu slíks ákvæðis um að ræða að gera það að skyldu. Það hefur ekki verið litið svo á að óheimilt hafi verið að krefjast keðjuábyrgðar fram til þessa og nokkrir opinberir aðilar hafa haft slík ákvæði í sínum útboðsgögnum. Meginmarkmið ákvæðisins er að sporna við misnotkun á vinnuafli hérlendis, ásamt því að auka vitund kaupenda um slíkt og er það í fullu samræmi, jafnframt, við stefnu hæstv. ríkisstjórnar, stjórnarsáttmála og niðurstöður skýrslu samstarfshóps hæstv. félags- og barnamálaráðherra um félagsleg undirboð og brotastarfsemi á vinnumarkaði um að sett verði slík skylda til ábyrgðar í lög um opinber innkaup.
Það var nefnd sem vann þessa skýrslu. Sá hópur sammæltist um að gera það að tillögu sinni að skylda til keðjuábyrgðar yrði sett í lög um opinber innkaup. Fram kemur í skýrslunni, með leyfi forseta, að að mati fulltrúa ríkisskattstjóra þurfi að „skilgreina vel ábyrgð verkkaupa, takmarka fjölda fyrirtækja í verktakakeðju og auka skyldur verkkaupa til að kalla eftir upplýsingum frá hverjum verktaka um launagreiðslur og skil á opinberum gjöldum.“ Mikilvægt er að keðjuábyrgð verkkaupa nái til réttinda starfsmanna og til skila á sköttum og skyldum.
Þá kom fram sú afstaða Alþýðusambands Íslands að keðjuábyrgð verði sett yfir allan vinnumarkaðinn. Varðandi þá hugmynd komu þau mótrök fram af hálfu fulltrúa Samtaka atvinnulífsins að frekar ætti að grípa til sértækra aðgerða þar sem vandamálin væru til staðar á vinnumarkaðnum. Almenn keðjuábyrgð sem myndi kalla á kostnaðarsamt eftirlit væri of víðtæk aðgerð. Það blasir við út frá þessu að það er mikilvægt að fyrir liggi mótaðar tillögur og leiðbeiningar um útfærslu og að ráðuneytið, líkt og nefndin leggur til hér í sínu áliti og hv. framsögumaður fór mjög vel yfir, hafi samráð við aðila vinnumarkaðarins þar um og að gefinn verði tími til þess, eins og lagt er til í breytingartillögu nefndarinnar við frumvarpið.
Að lokum vil ég koma að fyrirhuguðum breytingum er varða Ríkiskaup og verkefnum innkaupamála. Eins og fram kemur í nefndarálitinu og hv. framsögumaður nefndarinnar fór í raun vel yfir fellur nefndin frá ákvæðum sem gera ráð fyrir niðurlagningu Ríkiskaupa og heimild til að stofna sérstaka starfseiningu með ýmsum verkefnum, þar með talin innkaupamál. Nefndin telur nauðsynlegt að þróa þau mál áfram áður en kemur að lagabreytingum um niðurlagningu Ríkiskaupa og er tilbúin til að skoða með jákvæðum hætti sérstakt frumvarp um þau mál, þess vegna í haust, um skipulagsbreytingar og breytt verklag og stjórnun sem væru til þess fallin að auka sveigjanleika og getu til að takast á við síbreytilegt umhverfi og leiðir til að auka hagkvæmni í innkaupum ríkisins með áherslu á hagkvæm innkaup og skoða þá fyrirmyndir annars staðar frá, eins og til að mynda frá Danmörku þar sem áherslan hefur verið á aukna samhæfingu á sviði innkaupa og upplýsingatæknimála með umbætur og nýsköpun á því sviði að leiðarljósi.
Það hefur komið fram sá vilji ráðuneytisins, í samtölum við nefndina, að einn af lykilþáttum í þessari viðleitni og hagkvæmni sé að breyta formi Ríkiskaupa yfir í almennari umbóta- og nýsköpunarstofnun. Innkaupaþjónusta verði vissulega áfram mikilvægur þáttur í starfseminni en mikil tækifæri geti legið í auknum stuðningi við stofnanir, einkum á sviði upplýsingatækni, mannauðsstjórnunar og almennar fræðslu. Þar sem um verulega breytingu á víðtækara hlutverki stofnunarinnar yrði að ræða er talið að núverandi heimild til að fela stofnuninni slík verkefni sé ekki fullnægjandi.
Þá er hér til að taka í kafla 6.3 í fyrirliggjandi tillögu til þingsályktunar um ríkisfjármálaáætlun. Þar kemur fram að unnið sé að breytingum á stofnanaumgjörð umbótamála hjá ríkinu. Yrðu slíkar breytingar hluti af þeirri áætlun, með breytingu á Ríkiskaupum, með það að markmiði að stofnunin yrði sérstök starfseining ráðuneytisins sem stuðlaði að bættum rekstri og árangri í starfsemi ríkisins.
Ég vil bara hér, virðulegi forseti, í lok ræðu minnar taka undir með hv. framsögumanni um að það færi vel á því að slíkra breytinga sæi stað í sérstöku frumvarpi með ítarlegri greinargerð. Og nefndin er til í þá vinnu í framhaldinu. Ég vil jafnframt nota tækifærið hér og þakka hv. fjárlaganefnd fyrir vinnu að úrvinnslu þessa máls.