149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

opinber stuðningur við vísindarannsóknir.

411. mál
[15:56]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka framsögumanni nefndarinnar fyrir ágæta yfirferð yfir málið og nefndarálitið. Fram kom í máli hv. framsögumanns að sá sem hér stendur ritaði undir nefndarálitið með fyrirvara og langar mig til að gera grein fyrir honum. Fyrirvari minn lýtur fyrst og fremst að Rannsóknasjóði og samfjármögnun með erlendum verkefnum.

Fram kom í máli hv. framsögumanns að stjórn sjóðsins, þeir sem úthluta fjármagni úr sjóðnum, ættu að geta haft stýringu á því. En fram kom í umsögnum og hjá gestum sem komu fyrir nefndina að a.m.k. hluti þeirra hafði nokkrar áhyggjur af því að það verðuga verkefni að efla og gera samfjármögnun mögulega gæti hugsanlega haft neikvæð áhrif á sjóðinn. Lögðu þeir mikla áherslu á að styrkja þyrfti sjóðinn fjárhagslega til að verulegt gagn gæti orðið af slíkri samfjármögnun án þess að skerða það fé sem er til úthlutunar til annarra verkefna á vegum sjóðsins.

Með leyfi forseta, ætla ég að vitna í umsögn frá Lífvísindasetri Háskóla Íslands. Þar segir:

„Tillagan um samfjármögnun á rætur sínar að rekja til metnaðarfullrar stefnu Vísinda- og tækniráðs áranna 2013–2016. Ljóst er að markmið stefnunnar hafa því miður að mjög litlu leyti náð fram að ganga. Til að mynda gerði stefnan ráð fyrir því að árið 2016 næðu fjárveitingar til vísinda og nýsköpunar 3% af vergri landsframleiðslu. Tölur OECD sýna að langt er í land að þetta markmið hafi náðst þar sem hlutfall Íslands til vísinda og nýsköpunar árið 2016 var einungis 2,07% af vergri landsframleiðslu, sem er töluvert fyrir neðan OECD-meðaltal, sem var 2,34% sama ár, og langt fyrir neðan meðaltal hinna Norðurlandanna, sem var 2,73%. Frá árinu 2016 hefur sama krónutala verði sett í Rannsóknasjóð óháð verðlagsþróun, sem hefur gert það að verkum að árangurshlutfallið hefur lækkað úr 25% árið 2016 í aðeins 17% árið 2019. Með hliðsjón af bágri stöðu Rannsóknasjóðs er hætt við að breytingin sem hér er lögð til, ef framkvæmd ein og sér, muni veikja íslenskt vísindastarf.“

Ég tel rétt að vekja athygli á þessu og það komi skýrt fram, a.m.k. af minni hálfu, að Rannsóknasjóður er verulega vanfjármagnaður. Það er ekki að sjá að áætlanir ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir aukningu í sjóðinn. Þrátt fyrir að markmiðið um að auka samfjármögnun sé gott og göfugt kann þetta að leiða til þess að önnur verkefni líði fyrir það.

Þess vegna tel ég rétt að ítreka og hvetja stjórnvöld til þess að tryggja sjóðnum viðunandi fjármagn til þess að hægt sé að standa vel að væntanlegum samfjármögnunarverkefnum án þess að það komi niður á öðrum úthlutunum til vísindastarfs hér innan lands.

Þetta vildi ég taka fram. Eftir sem áður er ég á álitinu og styð frumvarpið en þó með þeim fyrirvara að það sé mjög mikilvægt að þessi mál verði tekin til ítarlegrar skoðunar þannig að hinn góði vilji sem felst í frumvarpinu líði ekki fyrir það að Rannsóknasjóður sé vanfjármagnaður og tilætlaður árangur náist ekki.