hollustuhættir og mengunarvarnir.
Herra forseti. Ég geri hér, eins og fram hefur komið, grein fyrir nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum. Þetta er EES-reglugerð eins og við segjum stundum eða innleiðing og við köllum þetta oft burðarpokafrumvarpið í daglegu tali.
Nefndin hefur fjallað um málið eins og vera ber og fengið á fund sinn gesti frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sorpu, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum verslunar og þjónustu og enn fremur fengið umsagnir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins og Samtökum verslunar og þjónustu, Sorpu og viðskiptaráðuneytinu, og farið mjög vandlega yfir þær.
Í stuttu máli er með frumvarpinu tilskipun Evrópuráðsins og þingsins frá 29. apríl 2015, um breytingu á tilskipun nr. 94/62, að því er varðar að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti, leidd í íslenskan rétt. Í frumvarpinu er kveðið á um markmið um notkun á burðarpokum úr plasti. Þá eru í frumvarpinu lagðar til ákveðnar ráðstafanir til að draga úr notkun burðarpoka úr plasti. Annars vegar að óheimilt verði að afhenda slíka burðarpoka, þar með talið burðarpoka úr plasti, án endurgjalds á sölustöðum vara og að gjaldið skuli vera sýnilegt á kassakvittun. Hins vegar að frá og með 1. janúar 2021 verði óheimilt að afhenda burðarpoka úr plasti hvort sem endurgjald komi fyrir eða ekki. Það má þá velta því fyrir sér hvort bannið eigi við margnota burðarpoka úr plasti sem eru seldir í búðum eftir 2021. Ég lít svo á.
Hvað varðar innleiðinguna er gengið er lengra en tilskipunin gerir ráð fyrir. Var við gestakomur bent á að ákvæði frumvarpsins um bann við afhendingu burðarpoka án endurgjalds, óháð því úr hvaða efni þeir eru, gengi lengra en Evróputilskipunin gæfi tilefni til. Einnig kom fram að ástæða þessa væri óljós sem og markmiðið með því að útvíkka bannið yfir allar tegundir burðarpoka eins og gert er. Því er til að svara að frumvarpið gengur lengra en lágmarkskröfur tilskipunarinnar gera ráð fyrir á þremur sviðum. Í fyrsta lagi er það krafa um endurgjald fyrir alla burðarpoka óháð efni, en sú skylda nær einungis til þunnra burðarpoka úr plasti samkvæmt tilskipuninni. Í öðru lagi nær frumvarpið til hefðbundinna burðarpoka úr plasti óháð þykkt þeirra, en tilskipunin tekur til burðarpoka úr plasti sem eru þynnri en svokölluð 50 míkrón. Í þriðja lagi er í frumvarpinu lagt til að óheimilt verði að afhenda burðarpoka úr plasti, hvort sem er með eða án endurgjalds, á sölustöðum vara frá og með 1. janúar 2021. Samkvæmt tilskipuninni er aðildarríkjum heimilt að velja til hvaða aðgerða er gripið til þess að stuðla að því að dregið verði úr notkun burðarpoka úr plasti en slíkar aðgerðir geta falið í sér notkun á efnahagslegum stjórntækjum, svo sem verðlagningu, sköttum og markaðshindrunum.
Nefndin áréttar að samkvæmt b-lið 3. mgr. 8. gr. laga um þinglega meðferð EES-mála sem settar eru af forsætisnefnd Alþingis skal í greinargerð með frumvarpi koma fram að hvaða marki frumvarpið hafi að geyma frávik frá upphaflegu EES-gerðinni. Þá skal sérstaklega tilgreint ef gengið er lengra en lágmarksákvæði viðkomandi gerðar kveður á um og skal rökstuðningur fylgja slíkri ákvörðun. Í greinargerð frumvarpsins er þess getið að með frumvarpinu sé gengið lengra en nauðsynlegt er, en hvergi er að finna rökstuðning fyrir því að sú leið er valin. Nefndin beindi því til ráðuneytisins að tryggja að nefndum reglum væri fylgt og óskaði eftir rökstuðningi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu hvað þetta varðar.
Ráðuneytið brást við því og benti á að nauðsynlegt væri að takast af krafti á við plastmengun og neyslu. Með banni á afhendingu burðarpoka án endurgjalds óháð efni væri lögð áhersla á mikilvægi fjölnota poka en nauðsynlegt væri að auka hlut þeirra, draga úr ofnotkun burðarpoka og koma í veg fyrir að einnota neysla færðist yfir á aðra. Í því samhengi bendir nefndin á að fram hafi komið á fundi nefndarinnar að ef sett væri vax á bréfpoka, t.d. fyrir merki verslunar, væri ekki hægt að endurvinna pokann.
Varðandi það að frumvarpið taki til allra plastpoka óháð þykkt benti ráðuneytið á að aðildarríki væru hvött til að undanskilja ekki þynnstu pokana, þ.e. þá sem eru þynnri en 15 míkrón. Ísland yrði við þeirri hvatningu auk þess sem plastpokar þykkari en 50 míkrón féllu undir ákvæði frumvarpsins. Með því að láta frumvarpið ná til burðarpoka óháð þykkt væri stuðlað að því að notkun á burðarpokum úr plasti drægist saman. Ef ákveðnar þykktir væru undanskildar væri viss hætta á því að notkun á þeim burðarpokum ykist.
Ráðuneytið benti loks á að í aðildarríkjum væri heimilt að velja til hvaða aðgerða væri gripið til að draga úr notkun burðarpoka úr plasti en ein af slíkum aðgerðum væri bann við afhendingu slíkra poka. Með því að leggja til að bannað yrði frá og með 1. janúar 2021 að afhenda burðarpoka úr plasti á sölustöðum vara, óháð því hvort endurgjald kæmi fyrir, væru send skýr skilaboð um að draga skyldi úr notkun á burðarpokum úr plasti.
Nefndin tekur undir framangreind sjónarmið ráðuneytisins og leggur jafnframt áherslu á nauðsyn þess að samfélagið allt leggist á árar með að nýta umhverfisvæna valkosti.
Varðandi staðsetningu ákvæða í lögum um hollustu og mengunarvarnir er þess að geta að fram kom í gestakomum að betur færi á því að þessari innleiðingu yrði fundinn staður í lögum um meðhöndlun úrgangs heldur en í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir þar sem með frumvarpinu væri verið að leggja til úrgangsforvarnir. Þá er því til að svara að nefndin fór yfir þetta og niðurstaðan er sú að samkvæmt. 2. gr. laga nr. 55/2003 gilda lögin um meðhöndlun úrgangs sem skilgreindur er sem hvers kyns efni eða hlutir sem handhafi úrgangs ákveður að losa sig við, ætlar að losa sig við eða er gert að losa sig við. Þá bendir nefndin á að með innleiðingu tilskipunarinnar sé verið að leggja nýjar skyldur og kvaðir á tiltekna vöru, þ.e. burðarpoka úr plasti, en ekki eingöngu verið að kveða á um meðhöndlun á vörunni þegar hún er orðin að úrgangi. Með vísan til þessa tekur nefndin undir með ráðuneytinu að betur fari á því að kveða á um að þær skyldur varðandi burðarpoka úr plasti í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Fram kom að óljóst væri hvaða opinberi aðili ætti að framfylgja ákvæðum kafla um burðarpoka, enda félli stór hluti þeirra fyrirtækja sem ákvæði frumvarpsins beindust að ekki undir heilbrigðiseftirlitið eða eftirlit heilbrigðisnefnda. Varðandi eftirlit með ákvæðum um burðarpoka bendir nefndin á að samkvæmt 51. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir annist Umhverfisstofnun eftirlit með framkvæmd laganna, þar með talið þeim ákvæðum um burðarpoka sem hér er lagt til að bætist við lögin. Það er stofnunarinnar að útfæra með hvaða hætti hún stendur að eftirlitinu.
Í 6. gr. frumvarpsins er kveðið á um að lögin öðlist gildi 1. júlí 2019 nema ákvæði 4. gr., bann við burðarpokum úr plasti, sem öðlast gildi 1. janúar 2021. Nefndin minnir á að á undanförnum misserum hafa þó nokkrar verslanir gripið til aðgerða í þeim tilgangi að skipta út einnota burðarpokum og fagnar nefndin sérstaklega því framtaki. Fram kom að verslunarfyrirtæki skipuleggja innkaup rekstrarvara, þar með burðarpoka, með nokkrum fyrirvara og sé álitamál hvort forsendur verði til innheimtu gjalds vegna afhendingar hnútapoka, þ.e. þunnra poka úr plasti sem gjarnan liggja frammi í grænmetisdeildum verslana. Fyrirtæki kunni því að standa frammi fyrir því að farga nokkrum birgðum á pokum sem þegar eru til en það sé ekki til þess fallið að stuðla að því að frumvarpið nái tilgangi sínum. Til að vinna gegn sóun verðmæta og stuðla að góðri sátt um efni frumvarpsins er lagt til að gildistöku b-liðar. 4. gr. frumvarpsins verði frestað um tvo mánuði.
Nefndin telur brýnt að ná víðtækri sátt um efni frumvarpsins og leggur því til að gildistöku b-liðar 4. gr. verði frestað til 1. september 2019. Nefndin leggur hins vegar áherslu á að markmið frumvarpsins er að draga úr notkun burðarpoka úr plasti og þess vegna er kjarnaatriði að í því ljósi áréttar nefndin mikilvægi þess að fyrirtæki bregðist hratt við, t.d. með því að hefja gjaldtöku fyrir alla burðarpoka úr plasti sem fyrst, sem og hraði eins og kostur er skiptum á plastpokum fyrir aðra umhverfisvæna kosti, bæði hvað varðar burðarpoka sem eru fáanlegar á afgreiðslukössum verslana og umrædda hnútapoka.
Að lokum vill nefndin árétta að í a-lið 4. gr. frumvarpsins er að finna ákvæði um markmið um notkun burðarpoka úr plasti. Þar er kveðið á um að stefnt skuli að því að eigi síðar en 31. desember 2019 verði árlegur fjöldi burðarpoka úr plasti sem hver einstaklingur notar 90 eða færri og 40 eða færri eigi síðar en 31. desember 2025. Ákvæði þetta er í samræmi við 2. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar um ráðstafanir aðildarríkja til að ná fram viðvarandi minni notkun á þunnum burðarpokum úr plasti á yfirráðasvæði sínu. Nefndin áréttar mikilvægi þess að þeim markmiðum verði náð, m.a. með vísan til þess að plastpokar sem verða að úrgangi ógna vistkerfum og lífríki í vatni og sjó. Með hliðsjón af því að lögum er almennt ætlað að gilda til framtíðar telur nefndin betur fara á því að tölulegum og tímasettum markmiðum sé komið fyrir í reglugerð.
Nefndin leggur því til breytingu á a-lið 4. gr. þess efnis að stefnt skuli að því að ná þeim tilteknu tölulegu markmiðum um notkun burðarpoka úr plasti. Þá sé ráðherra heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um tölulegu markmiðin varðandi notkun slíkra burðarpoka. Við setningu slíkra markmiða skuli m.a. höfð hliðsjón af kröfum í löggjöf Evrópusambandsins, stefnu um meðhöndlun úrgangs og svæðisáætlunum sveitarfélaga.
Þá eru gerðar nokkrar breytingar lagatæknilegs eðlis á frumvarpinu.
Niðurstaða nefndarinnar er í stuttu máli þessi: Burðarpokar úr plasti eru einungis lítið brot af þeim vanda sem leiðir af plastnokun og neyslu. Nefndin tekur undir að þörf er á umfangsmiklum aðgerðum og hugarfarsbreytingum í samfélaginu svo að draga megi úr plastmengun. Að mati nefndarinnar er frumvarpið hins vegar ótvírætt skref í rétta átt í baráttunni gegn plasti yfir höfuð.
Í ljósi allra framangreindra sjónarmiða leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem eru í fjórum liðum. Sá fyrsti varðar töluleg markmið um notkun burðarpoka úr plasti. Annar liður varðar hin tölulegu markmið, þ.e. að stefnt skuli að því að ná tilteknum tölulegum markmiðum, og enn fremur að ráðherra sé heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um þau tölulegu markmið. Í þriðja lagi er smá lagatæknileg breyting og eins í fjórða lið, sem ég ætla ekki að fjölyrða um hér.
Þá er komið að því að gera grein fyrir samþykktum og undirskriftum.
Undir álitið skrifa hv. þingmenn Jón Gunnarsson, formaður hv. umhverfis- og samgöngunefndar, og sá er hér stendur, Ari Trausti Guðmundsson flutningsmaður.
Hanna Katrín Friðriksson skrifar undir með þeim fyrirvara að í þessu máli og öðrum sem tengjast markmiðum um að draga úr plastpokanotkun verði litið til tillagna starfshóps fulltrúa stjórnvalda og atvinnulífs frá 2016 og einnig að stofnað verði til samstarfs verslunar og Umhverfisstofnunar sem m.a. undirbúi að stýra neytendum frá plastpokum í ríkara mæli með verðlagningu samhliða því að leggja áherslu á fræðslu og nýsköpun.
Aðrir sem skrifa undir eru Helga Vala Helgadóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Vilhjálmur Árnason.
Bergþór Ólason og Karl Gauti Hjaltason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Jón Gunnarsson var fjarverandi við afgreiðsluna en skrifar undir álitið í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.
Síðast en ekki síst er Björn Leví Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, samþykkur þessu áliti.
Herra forseti. Ég hef þá lokið máli mínu í bili.