149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

512. mál
[16:16]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni framsöguna. Ég ætla ekki að lengja þetta mál mjög en þótti ástæða til þess að koma hér upp þar sem ég var partur af þessum samráðshópi og hv. framsögumaður minn varamaður og við skiptum þessari vinnu bróðurlega á milli okkar. Mér fannst þess vegna ástæða til að koma hér og taka til máls.

Ég er afskaplega ánægð með að hér sé ákveðið að ganga lengra, þ.e. að undanskilja ekki þynnstu pokana sem margur grípur til þegar á að sefa samviskubitið. Það er talað um flugviskubit en þetta er náttúrlega bara hefðbundið samviskubit. Ekki er það plastbit, held ég. Þegar fólk vill ekki kaupa hefðbundna plastpoka í verslunum þá tekur það kannski þrjá, fjóra litla og heldur að það sé skárra. En auðvitað er það það ekki. Þessir pokar eru sýnu verri held ég en hinir. Ég er því afskaplega ánægð með að hér er gengið lengra.

Samkvæmt stjórnarsáttmála og áherslum umhverfisráðherra er lögð mikil áhersla á þessi plastmál. Starfshópurinn lagði eitt og annað til. Það var 18 þrepa aðgerðaáætlun sem gekk út á það hvernig draga mætti úr notkun plasts, bæta endurvinnsluna og takast á við plastmengun í hafi. Hópurinn lagði m.a. til að banna plastdiska, plasthnífapör, plaströr og annað einnota plast, sem kveðið er á um í drögum að tilskipuninni að verði flýtt og komið á og innleitt frá og með 1. janúar 2020. Það var líka lagt til að ráðist yrði í markvissa vitundarvakningu um hversu gríðarlega mikið við notum plast og plastvörur og að komið yrði á fót sérstökum rannsóknar- og þróunarsjóði sem styddi við nýjar lausnir.

Plast er svo víða. Örplast og trefjaplast og frauðplast. Við notum það í gríðarlega miklum mæli. Það sem við kaupum er því miður oft á tíðum innpakkað í plast. Það þarf líka að gera fyrirtækjum kleift að takast á við þetta. Ef stór lönd eins og Frakkland geta bannað þessa plastdiska og hnífapör og annað slíkt þá hlýtur Ísland að vera kjörland til þess að takast á það að losa okkur við vörur sem innihalda plast. Ég nefni líka að á síðasta ári tókust Bretar á við það að banna hreinlætisvörur sem innihalda örplast frá og með árinu 2020.

Hér er talað um að standa fyrir miklu átaki um að hreinsa strendur landsins og hjálpa fyrirtækjum og rekstraraðilum með miðlægri upplýsingagjöf að velja umhverfisvænni lausnir, t.d. undir matvöru. Einhvern veginn verðum við að komast í þá stöðu, hvort sem það er t.d. að geta komið með dallana okkar í fiskbúðina og keypt okkur fisk þar ofan í. Það er ekki heimilt samkvæmt heilbrigðiseftirlitsreglum í dag, skilst mér. Nokkrir kjötframleiðendur hafa verið að leita leiða við að pakka inn í umhverfisvænni umbúðir og það er vel. En því miður er allt of mikið af því sem er utan um matvöru sem við kaupum óendurvinnanlegt. Það er eitthvað sem við sjálf sem neytendur þurfum að takast á við. Auðvitað á ekki að þurfa að setja allt í lög og reglur til að við gerum það, framkvæmum slíka hluti, í ljósi allrar þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað, allrar þeirra plastmengunar sem við sjáum í hafinu. Plokkið á dögunum, sem var töluvert í fjölmiðlum, sýndi okkur gríðarlegt magn af alls konar drasli, plasti sem og öðru. Auðvitað er það undir okkur sjálfum komið að við breytum um hegðun í þessum málum.

Þetta er skref. Pínulítið skref. En þetta er gott skref og þetta er áleiðis. Eins og ég segi þá vildi ég bara koma hér rétt til að segja frá því að það var margt sem þessi hópur lagði til og ráðherrann er byrjaður að starfa út frá því og koma með tillögur þess eðlis. Ég lýsi mig afskaplega ánægða með að ferlið er hafið af hálfu ráðherra.