hollustuhættir og mengunarvarnir.
Herra forseti. Ég vil bara nota tækifærið og þakka hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir að minnast á þennan starfshóp sem hún starfaði í og ég kom inn í sem varamaður í einhver skipti. Þetta er þessi plastaðgerðaáætlun, ef við getum kallað hana það. Hún er inni á samráðsgáttinni og þar eru 18 liðir sem allir miða í þá átt að þrengja mjög að plastinu.
Það sem er gleðilegt við þá áætlun er að það eru jú einhver bönn fyrirsjáanleg, en það er mikið lagt upp úr bæði nýsköpun, fræðslu og við skulum segja nokkuð mjúkum leiðum í þá átt að banna. Þannig að ég held að það sé mjög mikilvægt að það komi fram hér í umræðunni að þetta frumvarp, sem ég gerði hér grein fyrir nefndarálitinu um, er ekki nema lítið skref af þeim sem taka þarf.
Eins langar mig að minnast á eitt atriði. Það komu svo sem fram áhyggjur hjá gestum sem komu fyrir hv. umhverfis- og samgöngunefnd varðandi frumvarpið, að það væri hægt að fara fram hjá þessum bönnum, þessum þrengingum að burðarpokum í verslunum með ýmsu móti. En á móti komu þau sjónarmið að neytendur, kaupendur, sem koma í þessar verslanir til að kaupa inn, veita mesta aðhaldið og sjá til þess að ekki verði farið í kringum reglur eða bönn — miklu auðveldar og betur en einhverjir tilgreindir eftirlitsaðilar, ef svo bæri undir.
Þannig að ég held að við getum verið mjög bjartsýn á að þetta nái þeim árangri sem að er stefnt.