149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[18:16]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég sit í velferðarnefnd með hv. þingmanni þannig að ég kannast við ýmsar af þeim áhyggjum sem hér koma fram. Ég held að það sé alveg eðlilegt að fólk hafi sterkar skoðanir á málinu þar sem enn eimir eftir af fötlunar- og kvenfordómum áttunda áratugarins.

Þær breytingar sem eru gerðar með þessu frumvarpi eru í framfaraátt — en eru engin útvíkkun, þvert á það sem þingmaðurinn segir. Eins og fram hefur komið leyfa gildandi lög, eins og þetta frumvarp, fóstureyðingu upp að 22. viku.

Hins vegar átta ég mig ekki á því hvers vegna þingmaðurinn leggur til þrengingu í breytingartillögu sinni. Því að gildandi lög leyfa konu að velja fóstureyðingu upp að 16. viku, en hér er troðið inn 12. viku.

Þingmaðurinn nefndi 16. viku í ræðu sinni og andsvari, en ef (Forseti hringir.) frumvarpið yrði að lögum með breytingartillögu hans samþykktri yrði hvergi minnst á 16. viku í þessum lögum. Á hverju byggir þingmaðurinn að hér sé verið (Forseti hringir.) að standa vörð um gildandi lög?