þungunarrof.
Forseti. Ég bið hv. þingmann afsökunar en ég spurði eiginlega engrar spurningar í fyrra andsvari. Ég spyr þá núna af því að mér heyrist á hv. þingmanni að hann sé efins um hvar eigi að draga línuna, að 22 vikur séu of nálægt þeim 23 vikum sem eru taldar mörkin þegar skilgreindur er lífvænleiki fósturs.
Ástæðan fyrir því að mörkin eru í 22 vikum er m.a. sú að réttur kvenna er þar í dag samkvæmt núverandi löggjöf en einnig að allir þeir sérfræðingar sem hafa komið til okkar hafa sagt að það sé mikilvægt vegna 20 vikna sónars, sem er mjög mikilvægur. Þarna eru greinast mjög alvarlegir hjartagallar, miðtaugakerfisgallar, nýrnagallar. Það er í ofboðslega fáum tilvikum sem kona fer í þungunarrof á þessum tíma. Þetta eru samt tilvik sem við verðum að koma til móts við, það er álit meiri hlutans og álit mitt að við þurfum að koma til móts við þær konur.
Svo eru þær konur sem eru í mjög erfiðum félagslegum aðstæðum sem við fengum sérstaka umfjöllun um í nefndinni sem hafa ekki getað sótt um til að fá þungunarrof, hafa ekki getað óskað eftir þungunarrofi og eru þá annaðhvort eignast börnin eða fara utan til að sækja sér heilbrigðisþjónustu.
Við höfum fengið þær upplýsingar og það er faglegt mat sérfræðinga að það eigi að vera réttur konu upp í 22. viku til að óska eftir þungunarrofi. Þá velti ég fyrir mér: Ef við byggjum ekki ákvarðanatöku okkar og löggjöf á faglegu mati sérfræðinga, á hverju byggjum við þá? Það er búið að vera ótrúlega mikið af tilfinningum í þessu máli. Á hverju eigum við að byggja? Ég spyr kannski hv. þingmann að því hvað hann telji vænlegast að gera þegar við erum að setja svona lög og á hverju eigi að byggja, ef ekki faglegri ráðgjöf sérfræðinga í málaflokknum.