þungunarrof.
Virðulegi forseti. Það var í desember síðastliðnum sem þessi kona stóð hér og við vorum við 1. umr. að þessu frumvarpi um fóstureyðingar, þungunarrof eins og kosið er að kalla það. Mér líður ekkert betur núna en mér gerði þá. Og rökin sem eru færð fyrir því að heimila fóstureyðingar til loka 22. viku meðgöngu eru svo ömurlega innantóm, finnst mér, að það tekur varla nokkru tali. Það er gert svo lítið úr okkur konum með því að reyna að halda því fram í fyrsta lagi t.d. að við njótum ekki sjálfsákvörðunarréttar yfir eigin líkama.
Almennt vil ég meina, virðulegi forseti, að það sé nákvæmlega það sem við gerum. Og einnig hitt, ég vil líka meina að það sé almennt að við ráðum því hvort við förum í fóstureyðingu eða ekki. Það sem ég er að boða hér er þessi tímalengd, þessi ótrúlega tímalengd, á því að ætla að heimila, bara að eigin geðþótta, fóstureyðingu til loka 22. viku meðgöngu þegar ég get í rauninni ekki lengur talað um fóstur heldur tala ég um barn. Ég er búinn að eiga fjögur börn. Þegar ég var komin 18 vikur á leið voru þau farin að sparka. Þegar ég var komin 20 vikur á leið, hálfnuð með meðgöngu, voru þau farin að sprikla. Þegar ég var komin 22 vikur á leið þá er ég komin með kúlu, stærðarinnar kúlu.
Ég verð að viðurkenna það, virðulegi forseti, að það er eiginlega sárara en tárum taki, í ljósi þess að við höfum enga ástæðu til að vera að ræða þetta hér og nú. Við höfum enga ástæðu til að efast um að nokkurri einustu konu — það eru bara upplýsingar, opinberar upplýsingar sem liggja fyrir hjá landlæknisembættinu, að árið 2017 voru framkallaðar 1.044 fóstureyðingar og engri konu — ég ætla að endurtaka það: engri einustu konu í sínum sjálfsákvörðunarrétti og ákvörðunarvaldi um það hvort hún treysti sér til að eiga barnið sitt eða ekki, var meinað um þá fóstureyðingu.
Það eru ekki komin opinber gögn á vef landlæknisembættisins um árið 2018, en ég hef samt sem áður heimildir þaðan sem ég aflaði mér símleiðis við fulltrúa: Það er mjög svipaður fjöldi fóstureyðinga sem var framkallaður árið 2018. Við erum að tala um, virðulegi forseti, fjórar fóstureyðingar hvern einasta virkan dag ársins.
Ég bara spyr: Þegar er verið að tala um sjálfsákvörðunarrétt okkar, hver er lífsréttur barnsins? Er hann einskis virði? Við státum af því að vera hér með fulltrúa barna á Alþingi. Hvernig getur ófætt 22. vikna gamalt barn í móðurkviði varið sig? Hvernig getur það gert það? Hver á að tala máli þessa óborna einstaklings? Hver á að gera það? Enginn?
Svo eru ítrekað dregin fram jaðartilvik um hugsanlegt 13 ára gamalt stúlkubarn sem hefur verið nauðgað, um hugsanlega fíkilinn sem veit ekki fyrr en hann er kominn 20 vikur eða þaðan af lengra á leið eða hefur verið haldið fanginni heima hjá sér af vondum barnsföður. Það er verið að draga fram furðuleg jaðartilvik sem þarf að reyna að leita logandi ljósi að ef á að vera mögulegt að finna. En það skiptir engu máli um þau jaðartilvik — þessir einstaklingar, þá og þegar þeir óska eftir því að fara í fóstureyðingu, fá ekki nei. Það er tryggt að félagslega er tekið utan um allar konur sem þurfa að taka þessa erfiðu ákvörðun.
Mér finnst, miðað við hve mörgum í rauninni svíður, og þar á meðal mér — mér er bara illt í hjartanu að tala um þetta. Fyrir utan lítilsvirðinguna sem maður hefur orðið var við hér í þingsal í dag þegar heilu hóparnir af þingmönnum sitja hér í hliðarherbergi flissandi og hlæjandi að þingmönnum sem hafa komið hingað til að ræða mál sem er þeim hjartans mál.
Ég er að hugsa um að fá mér smá vatn áður en lengra er haldið.
Breytingartillaga Flokks fólksins, 3. minni hluta, segir að við drögum línuna við 12 vikur. Hér hefur ítrekað komið fram, t.d. hjá hv. formanni velferðarnefndar, að það sé í rauninni ekki verið að breyta neinu, það sé heimild alveg til 22 vikna. Hún hefur sagt ítrekað hér í dag að það sé litlu verið að breyta. Það er rangt. Meginreglan er í 10. gr. núgildandi laga, í 2. mgr. kemur fram: Það er ætlast til og tilmæli um að fóstureyðing hafi farið fram fyrir 12. viku. Fram að 16. viku er það frekar undantekning. Undantekningarnar sem við erum að tala um, sem ég er að tala um hér og nú, þar sem er þörf á því, þar sem hafa komið upp jaðartilvik — eftir þann tíma er það algjör undantekning. Algjör.
Það er meira að segja farið að draga fram að einhverjar konur hafi á einhverju tímabili þurft að leita til annarra landa til að fara í fóstureyðingu af því það hefur ekki verið hægt að framkvæma þær hér heima eða þeim hefur verið meinað um þær.
Ég vil fá að sjá þessi dæmi, virðulegi forseti. Það er ekki nóg að standa hér og tala um eitthvað sem hvergi er skráð á blað.
Ég stend hér og er stolt af því að tala fyrir munn ófæddra barna sem eru gengin 22 vikur. Ég var að horfa á mynd af einu slíku rétt áðan. Ég meira að segja var búin að prenta hana út risastóra og ég var að hugsa um að setja hana hérna upp en ég hætti við það. Og að ætla að halda því fram að við séum með einhverja andúð á sjálfsákvörðunarrétti kvenna. Það er bara ljótt að gera það. Að reyna að draga fram að við séum á móti fóstureyðingum, þó að mann svíði í hjartanu þegar hefur skapast líf, að skuli koma upp þær erfiðu aðstæður að þurfi að eyða því. Ég bara neita því harðlega að á nokkrum tímapunkti höfum við talað um það að eigi að meina konum um að leita sér hjálpar þegar þær þurfa á því að halda.
Þessi tilhneiging sem maður horfir upp á — ég ætla að nefna lítið dæmi sem kannski allir muna eftir. Það var hér í fyrrasumar dregin á land í hvalstöðinni í Hvalfirði hvalkýr sem hafði verið drepin og þegar hún var rist á hol datt út lítill hvalkálfur. Það ætlaði gjörsamlega allt af göflunum að ganga. Þvílík mannvonska, þvílík mannvonska! Í stað þess að standa hér, í stað þess að vinna saman að því að taka utan um sérstaklega — hugsið ykkur — þá sem af félagslegum ástæðum, fátækt, vanlíðan og kannski þrá eftir því að geta fætt barnið sitt en neyðast til að fara í fóstureyðingu, í stað þess að vera hér og taka utan um þann þjóðfélagshóp kvenna, í stað þess að hjálpa þeim — nei, þá erum við að tala um hvernig við eigum að auðvelda þeim að láta eyða barninu sínu.
Virðulegi forseti. Ég þarf í rauninni ekki að segja mikið meira. Mín skilaboð eru skýr. Það er algerlega á hreinu hver afstaða mín er gagnvart þessu.
Og komiði svo og veriði velkomin í andsvör við mig.