þungunarrof.
Forseti. Ég held að það sé enginn að tala um að það sé ekki mikilvægt að taka utan um þær konur sem eru í viðkvæmum félagslegum aðstæðum. Það skiptir gríðarlega miklu máli. Ég vil kannski bara minna hv. þingmann á að eitt af mínum helstu baráttumálum á þingi hefur verið að uppræta fátækt, passa að það hafi allir efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Það skiptir rosalega miklu máli.
En ég bara dreg í efa að svarið sé að neita þeim konum sem eru í erfiðum aðstæðum núna, út af því að við erum ekki búin að redda málunum, um að fara og fá þessa heilbrigðisþjónustu og fara í þungunarrof.
En mig langar til að spyrja hv. þingmann, því mér finnst dálítið ruglingslegur málflutningurinn hjá henni og líka hjá hv. þm. Guðmundi Inga (Gripið fram í.)Kristinssyni: Er hv. þingmaður hlynntur núverandi fyrirkomulagi, þ.e. lögunum eins og þau eru í dag? Það er í raun bara stutt og einföld spurning.