149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[20:30]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held ég hafi sagt það skýrt áðan: Mér er illt í hjartanu yfir öllu lífi sem er eytt.

En, já, miðað við það sem við höfum haft síðan 1975 og í rauninni hefur verið víkkað út, farið umfram meginregluna um 12 vikur, og við höfum verið að framkvæma þessar aðgerðir til loka 16. viku — já, þá vildi ég gjarnan hafa haft það svona.

Hins vegar í því frumvarpi sem er frá 1975 er ég hlynnt því að aðskilja t.d. ófrjósemisaðgerðir því frumvarpi. Að öðru leyti, eins og margir vita sem þekkja pínulítið til lögfræðinnar, er ekki einu sinni hægt að tala um gamla löggjöf að þessu leyti.

Svo er það annað sem er sérstaklega athyglisvert sem ég tók eftir. Það er verið að tala um heilbrigðisþjónustu. Eru barnshafandi konur veikar? Eru þær mjög veikar? Og hefur einhverri konu verið neitað um þessa aðgerð? Er það ekki það sem málið snýst um, að við fáum þá úrlausn sem við erum að óska eftir hverju sinni?