149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[20:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Halldóra Mogensen) (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Mér skildist á þessu svari að hv. þingmaður sé hlynntur núverandi fyrirkomulagi og það vekur spurningar þar sem breytingin sem þetta frumvarp sem við erum að fjalla um hér í dag felur í sér sömu réttindin. Þetta er sami vikufjöldi, 22 vikur. Í dag getur kona farið í þungunarrof alveg upp að 22. viku, það er tryggt.

Og eins og hv. þingmaður réttilega segir hefur konum ekki verið neitað um þessar aðgerðir.

Þannig að hvað er það raunverulega sem hv. þingmanni er illa við? Því að það kemur þá væntanlega vikufjöldanum ekki við, því að vikufjöldinn er sá sami. Nú snýst þetta bara um það að konan getur tekið ákvörðun sjálf, en eins og fyrirkomulagið er í dag eru það læknar sem þurfa að ákveða fyrir konuna.

Er það grunnurinn að málinu? Er hv. þingmaður sammála því að það eigi að vera einhver læknir sem tekur þessa ákvörðun fyrir hönd konunnar frekar en að hún taki ákvarðanirnar sjálf? Því að það er meginbreytingin sem á sér stað með þessu frumvarpi. Hún hefur ekkert með vikufjöldann að gera.

Þessi „furðulegu jaðartilvik“ sem hv. þingmaður talar um, sem eru svo fá að væntanlega er hv. þingmaður að ýja að því að við eigum ekki einu sinni að pæla í þeim því að þau eru svo fá. En er það ekki einmitt hlutverk okkar, löggjafans, að koma til móts við þær konur, þessi jaðartilvik, sem eiga í mestum erfiðleikum og eru væntanlega viðkvæmasti hópur kvenna?

Rökin eru ekkert innantóm. Það er búinn að koma aragrúi af rökum fyrir þessu. En fyrst og fremst snýst þetta um sjálfsákvörðunarrétt kvenna.

Hv. þingmaður talar um að heimila að „eigin geðþótta“. Það (Forseti hringir.) er frekar neikvætt orðalag um að kona taki ákvörðun fyrir sig.

Þannig ég spyr hv. þingmann: Fyrst vikufjöldinn er ekkert að breytast og við erum ekki að víkka (Forseti hringir.) hann út, hvað er það nákvæmlega sem hv. þingmaður er hræddur við?