þungunarrof.
Herra forseti. Ég er ekki sú fyrsta til þess að minnast á jaðartilvik í þessum ræðustóli eða við hv. þingmann. Ég las opið bréf til hv. þm. Ingu Sæland frá fæðingarlækni sem mér fannst mjög mikilvægt innlegg inn í þessa umræðu og mjög mikilvægt andsvar við þann málflutning sem hv. þm. Inga Sæland hefur haft í frammi um þetta frumvarp og um ástæðurnar að baki því.
Ég ætla að leyfa mér að lesa aðeins úr þessu opna bréfi til hv. þm. Ingu Sæland. Bréfið er frá Sigurlaugu Benediktsdóttur sem starfar sem fæðingar- og kvensjúkdómalæknir á Landspítalanum og hefur unnið sem fæðingarlæknir síðastliðin 15 ár á Íslandi og í Svíþjóð:
„Mig langar svo að vekja athygli þína á litlum hópi kvenna, sem eiga sér engan málsvara í ofannefndri frumvarpsumræðu, nema ef vera skyldi einhvern eins og mig.
Þetta eru konur sem leita á kvennadeildina eftir 16. viku þungunar og óska eftir fóstureyðingu af félagslegum ástæðum. Þessum örfáu tilfellum er best lýst með dæmum ….“
Hún tekur það fram að hún er ekki að nefna konkret dæmi, alvörudæmi, heldur týpisk dæmi um þau tilfelli sem hún hefur staðið frammi fyrir í starfi sínu.
Hún nefnir þrjú dæmi og dæmi nr. tvö hljóðar svo:
„13 ára gömul stúlka kemur í fylgd með 29 ára gamalli móður sinni sem er einstæð með þrjú börn og vinnur sem kennari. Móðirin hafði tekið eftir breyttu vaxtarlagi hjá stúlkunni og þráfaldlega spurt hana hvort hún sé farin að sofa hjá, en stelpan neitar. Mamman krafðist þess að stelpan gerði þungunarpróf í gær sem var jákvætt. Stúlkan kemur til skoðunar á kvennadeild og reynist vera gengin 17 vikur. Stelpan er í grunnskóla. Mamman fær ekkert fæðingarorlof. Mamman getur ekki tekið langt frí frá vinnu sem hún var að byrja í. (Forseti hringir.) Mamman rétt nær endum saman með sín þrjú börn og hefur ekkert aflögu. Ég þarf að sitja og horfa í augun (Forseti hringir.) á þessum mæðgum og segja: Nei, þú skalt ganga með þetta barn.“
Hefur hv. þingmaður lesið þetta opna bréf sem stílað er á hana? Hverju svarar hún því?