þungunarrof.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir andsvarið. Já, ég las þetta opna bréf. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að lesa það fyrir mig aftur. Ég veit ekki hvaða skilaboð hún er að reyna að senda því að ég hef aldrei heyrt um að 13 ára gamalli stúlku í þessari stöðu hafi verið neitað um fóstureyðingu. Ég veit ekki til þess. Hins vegar heyrði ég hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur tala í dag í andsvari og nota orðalagið „einhverjum körlum sem finnst lífið heilagt“. Hér stendur hins vegar einhver kerling sem finnst lífið heilagt. Það sem þessi ágæti læknir skrifaði er ekki í takt við það sem margir aðrir hafa skrifað. Ég er ekki með á takteinum til að lesa upp úr einni eða tveimur af 62 umsögnum sem bárust velferðarnefnd um frumvarpið, sem í raun voru ekki allar jákvæðar gagnvart því heldur þvert á móti.