149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[21:23]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er orðið dálítið síðan ég áttaði mig á því að það eru svo mörg siðferðisleg álitaefni sem ég glími við að ég er ekki alltaf með svör á reiðum höndum. Og það er stundum þannig að þegar maður tekur ákvörðun rekur maður sig stundum á einhver horn, vegna þess að það er alveg sama hvað við gerum, m.a. í þessu máli, og meira að segja 22 vikur leysa ekki heldur endilega allan þann vanda sem hv. þingmaður telur.

Það getur líka verið að eftir 22. vikur komi með svipuðum hætti ýmislegt fram.

Þannig að ég verð bara að segja: Ég nálgast málið kannski á tiltölulega einfaldan hátt og kannski gæti hv. þingmaður haldið því fram — með rökum meira að segja — að það sé einfeldningslegt að nálgast málið með þeim hætti að virða helgi lífsins.

En ég sagði líka í ræðu minni: Þessi virðing fyrir helgi lífsins felur líka í sér að við séum tilbúin að líkna, vegna þess að líknin er auðvitað fólgin í því að taka ákvörðun um það, jafn erfitt og það getur verið, að dauðinn sé ekki versti kostur sem við blasir, jafn ömurlegur kostur og hann annars er, jafn endanlegur og hann er.

En ég skal viðurkenna það, hv. þingmaður. Ég kann ekki að svara þér betur en ég geri hér.