þungunarrof.
Virðulegur forseti. Það eru fyrst og fremst tvö atriði sem ég hef hug á að koma inn á í þessari ræðu minni um það frumvarp sem við ræðum nú í 2. umr. Annars vegar er það breytt hugtakanotkun sem ég verð að viðurkenna að mér þykir vera heldur algengt orðið að notað sé til að breyta þeim hughrifum sem mögulega eiga sér stað í tengslum við bæði mál eins og hér er rætt, hvort sem við köllum það þungunarrof eða fóstureyðingu, eða þá bara í almennum rekstri hins opinbera þar sem hlutir annaðhvort heita orðið stofur eða eitthvað þaðan af saklausara, sem eru hreinar stjórnsýslustofnanir. En það er umræða fyrir síðari tíma.
Við þetta mál vakna auðvitað margar siðferðilegar spurningar, eins og hv. þm. Óli Björn Kárason kom inn á í ræðunni á undan, prýðisgóðri ræðu sem kom inn á margt af því sem ég ætla mér að koma inn á á eftir, og hitt atriðið sem ég geri athugasemdir við í málinu er meginatriðið, þ.e. sú sem dregin er hvað 22 vikurnar varðar.
Ef ég fæ, með leyfi forseta, að stinga niður í umsögn biskups varðandi þetta atriði þá segir svo ágætlega þar:
„Samfélag okkar hefur á undanförnum áratugum fundið jafnvægi á milli hinna ólíku sjónarmiða um rétt hinnar verðandi móður yfir eigin líkama og rétt fósturs til lífs, þrátt fyrir þær mótsagnir sem því fylgir. Þar sem 12 vikna tímaramminn hefur verið studdur sjónarmiðum heilbrigðisvísinda, mannréttinda og í framkvæmd sem bestri þjónustu félagsráðgjafa og annarra fagstétta við þær faglegustu aðstæður sem völ er á. Hinar nýju tillögur raska því jafnvægi, að mínu mati, og vekja jafnvel upp á ný grundvallarspurningar, sem við ættum auðvitað alltaf að spyrja okkur að varðandi mannhelgina og framgang lífs hér í heimi.“
Þetta eru sjónarmið biskups í því samhengi, sem eru vel þess virði að veita athygli. Það er, leyfi ég mér að segja, eins góð samfélagsleg sátt um núverandi tímaviðmið og ég held að mögulegt sé að komast að í máli eins og þessu. Það má vel vera að ég hafi rangt fyrir mér. Ég hef oft rangt fyrir mér, en ég held einhvern veginn að þessi nálgun, sem er gamla viðmiðið með þeim undanþágum sem þar eru tilgreindar, sé nálgun sem samfélagið í heild getur lifað í bærilegri sátt með.
Eins og komið hefur fram í umræðunum í dag þarf enginn að reyna að halda því fram að um þetta sé alger sátt hjá sérfræðingum. Það er umtalsvert af umsögnum lækna sem leggja til aðra útfærslu en farin er. Það þarf því í rauninni ekkert að fjölyrða um að málið er umdeilt, þetta er og verður viðkvæmt og ég vil fyrir alla muni að við sem hér erum nálgumst málið af mikilli varfærni. Þetta er sennilega það mál sem við afgreiðum eða förum yfir á þessu þingi þar sem mestar tilfinningar verða undir, mér segir svo hugur um. Ég hef fylgst með umræðunni í allan dag og hefur oft kastast í kekki. Ég skora á okkur öll að virða sjónarmið hvert annars. En sjónarmið mín sem snúa að tímamarkinu liggja svona.
Eins og frumvarpið liggur fyrir í samræmi við meirihlutaálitið er horft til þess að heimila fóstureyðingar eftir allt að 22 vikna meðgöngu, þ.e. til og með 22. viku ef ég skil meirihlutaálitið rétt. Upphaflega gerði frumvarpið ráð fyrir 18 vikum en því var breytt og gengur það nú lengra en í flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Þau álit sem send hafa verið inn skiptast alveg í tvær fylkingar, það verður að segjast eins og er. En það eru tvö álit sem mig langar að vekja sérstaklega athygli á. Það hittir þannig á að það eru sömu umsagnir og hv. þm. Óli Björn Kárason kom inn á í ræðu sinni á undan. Annars vegar er það prýðisgóð umsögn frá fyrrverandi alþingiskonu Samfylkingarinnar, Ólínu Þorvarðardóttur, sem ég ætla að leyfa mér að vitna til. Það er margt í umsögn Ólínu Þorvarðardóttur sem væri tilefni til að koma inn á og ég hvet þá sem á hlýða til að lesa umsögn hennar. Í niðurlagi umsagnarinnar segir hún:
„Undirrituð leggst alfarið gegn 4. gr. frumvarpsins sem felur í sér útvíkkun tímamarka til fóstureyðinga til loka 22. viku.
Eðlilegt hefði verið að halda fast í óbreytt tímaviðmið samhliða því að taka upp fortakslausan sjálfsákvörðunarrétt kvenna til að binda endi á þungun. Yrði það gert má segja að hugtakið „þungunarrof“ geti átt rétt á sér og verið til áréttingar því sjónarmiði sem liggur til grundvallar sjálfsákvörðunarréttinum.
Að óbreyttu reynir þetta frumvarp mjög á siðferðilegt þanþol þeirra sem að málum þessum koma ekki aðeins heilbrigðisstarfsfólks heldur allra sem láta sig málið varða. Fari frumvarpið óbreytt í gegn er hætt við því að sú sátt sem hefur verið um fóstureyðingar á Íslandi sé rofin. Það yrði óbætanlegur skaði fyrir íslensk kvenréttindi og mannréttindi í víðara samhengi.“
Þarna má segja að sjónarmið biskups og fyrrverandi þingmanns, Ólínu Þorvarðardóttur, fari prýðilega saman. Ég ætla að leyfa mér að gera þau í meginatriðum að mínum.
Til viðbótar við þetta er umsögn sem ég tel ástæðu til vekja sérstaklega athygli á og það er umsögn Siðfræðistofnunar og þá sérstaklega niðurlag hennar. Rétt er að taka fram að meginþungi umsagnar Siðfræðistofnunar snýr að 22. vikna tímaviðmiðinu og röksemdum þar að lútandi. Ég ætla, með leyfi forseta, að koma inn á niðurstöðu Siðfræðistofnunar þar sem segir í lokamálsgrein umsagnar stofnunarinnar:
„Það er niðurstaða Siðfræðistofnunar að mikilvægt sé að flýta ekki um of afgreiðslu þessa frumvarps. Í fyrsta lagi telur Siðfræðistofnun varasamt að heimila þungunarrof allt til 22. viku því þá getur fóstur verið orðið lífvænlegt utan líkama móður. Í öðru lagi þarf að huga vel að þeirri spennu sem er á milli þessa frumvarps og samnings Sameinuðu þjóðanna um rétt fatlaðs fólks. Hér eru í húfi grundvallarspurningar og álitamál um siðferðisstöðu fósturs, rétt fatlaðs fólks og sjálfsákvörðunarrétt kvenna sem þarfnast djúprar og upplýstrar umræðu í samfélaginu. Umsögn þessi er hugsuð sem innlegg í þá umræðu.“
Ég vona að hv. velferðarnefnd taki málið til ígrundaðrar skoðunar á milli umræðna. Það er ljóst að mikill skoðanamunur er í málinu og fjarri lagi að allir sérfræðingar sem um málið fjallað séu sammála, þannig að því sé haldið til haga.
Að endingu vil ég leggja til að menn fari varlega með afgreiðslu frumvarpsins og ítreka áður fram komin sjónarmið mín.