vátryggingastarfsemi.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir hönd efnahags- og viðskiptanefndar fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, með síðari breytingum, þ.e. fjöldi fulltrúa í slitastjórn. Þetta er á þingskjali 1300.
Eins og segir í greinargerð var það þannig að við umfjöllun efnahags- og viðskiptanefndar um mál 632, sem varðar m.a. breytingar á lögum um vátryggingastarfsemi, benti Fjármálaeftirlitið nefndinni á að brýnt væri að gera breytingu á 1. málslið. 1. mgr. 152. gr. laganna þannig að kveðið yrði á um að stofnunin skyldi skipa allt að þriggja manna slitastjórn vegna slitameðferðar vátryggingafélags, en gildandi ákvæði girðir fyrir að færri en þrír skipi slitastjórn í slíkum tilfellum. Benti Fjármálaeftirlitið á að þó svo að í upphafi í slitameðferð vátryggingafélags væri nánast undantekningarlaust þörf á þriggja manna slitastjórn væri þess ekki endilega þörf til loka slitameðferðar, sem gæti tekið mörg ár vegna lengdar á kröfulýsingarfresti vátrygginga. Fjármálaeftirlitið teldi því nauðsynlegt að orðalagi ákvæðisins yrði breytt, m.a. til að koma í veg fyrir að launakostnaður slitastjórnar meðlima yrði óhóflega stór hluti rekstrarkostnaðar og endaði á því að rýra það sem eftir stæði fyrir kröfuhafa félagsins, svo sem vátryggingartaka og vátryggða. Þessu til stuðnings mætti benda á að í lögum um fjármálafyrirtæki væri kveðið á um að í slitastjórn skyldu sitja allt að fimm menn.
Nefndin fellst á framangreind sjónarmið með Fjármálaeftirlitinu og leggur með þessu frumvarpi til viðeigandi breytingu á 1. mgr. 152. gr. laga vátryggingastarfsemi.
Herra forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað beint til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.