störf þingsins.
Herra forseti. Núna um helgina hefst íþróttaþing, ÍSÍ-þingið, hér í Reykjavík. Það verður sett með pompi og prakt og mörg mikilvæg málefni eru á dagskrá þess þings.
Ég vil sérstaklega vekja athygli á því að það er mikilvægt að það verði sett í farveg að huga að aðstæðum þjóðaríþróttagreinanna okkar, ekki bara handboltans heldur líka körfuboltans og frjálsíþróttanna, varðandi inniaðstöðu fyrir þessar íþróttir.
Ég vil leggja sérstaka áherslu á, og lái mér hver sem vill, bæði körfuboltann og handboltann.
Það liggur ljóst fyrir að höllin eins og hún er núna, það magnaða mannvirki, glæsileg hönnun sem við gátum verið stolt af á sínum tíma þegar hún var reist og hún hefur náttúrlega hýst mörg stórkostleg íþróttaatvik í okkar sögu — en engu að síður er ljóst að miðað við nútímakröfur, alþjóðlegar kröfur, fyrir landsliðin okkar og ef við viljum halda áfram að hafa landsleikina hérna heima, þurfum við að fara að huga að því að kortleggja og setja niður fyrir okkur hvernig framtíðarumgjörðin eigi að vera fyrir þessar lykilíþróttagreinar okkar Íslendinga.
Fótboltinn er í ákveðnum farvegi en innanhússgreinarnar þurfa sérstakt utanumhald. Ég veit að Reykjavíkurborg hefur skoðað þetta vel og vill fara í greiningu. Ríkisvaldið þarf hins vegar að koma hér að málum og vera hluti af lausninni, koma að því að kortleggja framtíðarþarfir og möguleika fyrir okkar íþróttamenn og -konur og hvernig við getum haldið áfram að halda vel utan um þessar greinar sem hafa yljað þjóðinni um árabil.
Þannig að ég hvet ríkisstjórnina og ekki síst hæstv. menntamálaráðherra til að taka því fagnandi (Forseti hringir.) að kortleggja það hvernig umgjörð á að búa þessum íþróttagreinum og hvort við þurfum nýja höll strax.