149. löggjafarþing — 99. fundur,  3. maí 2019.

störf þingsins.

[10:35]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Nú í hádeginu megum við hér á Alþingi eiga von á að vinnufriður okkar raskist þegar vikulegt loftslagsverkfall fer fram á Austurvelli, að mig minnir elleftu vikuna í röð. Loftslagsmálin eru ofarlega í huga margra í samfélaginu og samkvæmt fremstu vísindamönnum heims er mikilvægt að hafa hraðar hendur ef menn ætla að lifa miklu lengur á jörðinni. Það er ýmislegt sem hægt er að gera og ýmislegt sem nú þegar er í ferli, eins og við þekkjum svo vel hér.

Okkur verður tíðrætt um orku, orkuskipti og hinar ýmsu leiðir til að gera samgöngur og ökutæki umhverfisvænni. Því langar mig að vekja athygli á grein Sigurðar Inga Friðleifssonar, framkvæmdastjóra Orkuseturs, sem birtist í Kjarnanum um síðustu helgi. Þar gerði hann metangas að umfjöllunarefni sínu og hve vannýtt auðlind það er hér á landi. Metangas er Svansvottað og kolefnishlutlaust eldsneyti sem mannfólk beinlínis tekur þátt í að framleiða, enda er það unnið úr lífrænum úrgangi.

Margir hafa réttilega áhyggjur af mikilli neyslu okkar mannfólksins, sem er rót loftslagsvandans. Það er flókið og erfitt að breyta neyslumynstri sínu og útrýma öllu rusli og úrgangi. En metangas er ein lausn, þá sérstaklega þegar litið er til þess að stjórnvöld hafa sett sér metnaðarfull markmið í orkuskiptum og í breytingum á bílaflota landsins.

Á Akureyri hafa metanvagnar rúllað um strætóleiðir bæjarins um nokkurt skeið með góðum árangri og hér á höfuðborgarsvæðinu eru tveir metanvagnar í notkun hjá Strætó bs. ásamt nokkrum rafmagnsvögnum.

Virðulegi forseti. Betur má ef duga skal. Rafvæðing bílaflotans er ekki eina lausnin og til lengri tíma gætu metanbílar verið þægilegri og aðgengilegri lausn fyrir almenning ef viljinn er fyrir hendi.