störf þingsins.
Virðulegur forseti. Hvað verður um mig? Á hverju ári spyr 101 barn sig þessarar spurningar, þegar það hefur misst foreldri sitt. Hagstofan birti í síðastliðinni viku tölur yfir það hve mörg börn missa foreldri sitt á ári og að meðaltali er um 101 barn að ræða. Það er há tala og það er margt sem gerist í lífi ungs barns þegar það missir foreldri sem setur það í mjög viðkvæma stöðu. Haldið var málþing um þetta síðasta fimmtudag undir yfirskriftinni: Hvað verður um mig? Þar héldu forseti Íslands, ráðherrar og fleiri erindi. Þar var mikið traust lagt á að við á Alþingi mótuðum stefnuna í þeim málaflokki með því að samþykkja lagafrumvarp, sem er til meðferðar í velferðarnefnd, um réttindi barna sem aðstandenda. Þar er tekið á því hvernig börnum verði tryggður réttur til að halda tengsl við fjölskyldu þess foreldris sem fallið er frá og er það hluti af því að tryggja öryggisnet barnsins og svara spurningunni um það hvað verði um það, hver verði í öryggisneti þess eftir að það missir foreldri sitt. Annar mikilvægur þáttur í því frumvarpi er að tryggja frumkvæðisskyldu vissra aðila innan kerfisins til að hafa visst skipulag uppi í því að tryggja velferð barnanna, að tryggja að þau fái viðunandi upplýsingaþjónustu, að réttur þeirra sé tryggður við þessar aðstæður og að sá stuðningur haldi út æsku barnsins. (Forseti hringir.) Ég treysti því að við klárum þetta mál hér og komum þeim málum í örugga höfn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)