störf þingsins.
Herra forseti. Þingið er statt í miðri 2. umr. um frumvarp til laga um þungunarrof. Málið verðskuldar vandaða umfjöllun og hófstillta umræðu og ég hvet hv. þingmenn sem taka þátt í umræðunni til að gæta hófs í orðavali sínu um þau mál.
Málið snýst í kjarnann um yfirráðarétt og sjálfsákvörðunarrétt kvenna um eigin líkama. Það er grundvallaratriði í málinu og sá sjónarhóll sem við eigum að horfa á málið út frá. Í mínum huga snýst málið ekki um vikutalningu. Það snýst um að konur ráði sér sjálfar, hver og ein á eigin forsendum, og það geti aldrei verið þannig að opinberir aðilar eða fagaðilar eigi að segja konum hvað þeim er fyrir bestu og hvaða ákvarðanir þær eigi að taka. Það á vissulega að veita konum ráðgjöf og upplýsingar ef eftir því er leitað en ákvörðunin sjálf er konunnar.
Staðreyndin er sú að þar sem frjálsræði er mest í þeim efnum hefur það ekki leitt til þess að þungunarrofum hafi fjölgað. Þvert á móti bendir margt til þess að þungunarrofum fækki.