149. löggjafarþing — 99. fundur,  3. maí 2019.

störf þingsins.

[10:42]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér að nota þetta tækifæri til að fjalla aðeins um störf þingsins. Án þess að ætla að fara inn í efnisatriði varðandi þriðja orkupakkann er umfjöllunin um hann, og sú málsmeðferð sem uppi er, orðin mér áleitið umhugsunarefni. Ég velti fyrir mér hvort sú ítarlega skoðun sem nú fer fram á vettvangi Alþingis á þessu máli ætti ekki að gerast mun fyrr í ferlinu. Við stöndum frammi fyrir ákvörðun sem þegar hefur verið tekin á vettvangi sameiginlegu EES-nefndarinnar. Eins og menn þekkja stappar nærri að ákvarðanir á þeim vettvangi hafi lagaígildi. Þegar málið er skoðað vandlega — og hér liggja fyrir ýmis álit, mjög vönduð — standa menn t.d. frammi fyrir orðum í margtilvitnuðu áliti Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts og Stefáns Más Stefánssonar. Þegar rætt er um þessa evrópsku orkustofnun segir að hafa verði í huga, með leyfi forseta:

„… að ákvörðunarvald hinnar erlendu stofnunar samkvæmt reglugerð nr. 713/2009 tekur a.m.k. óbeint til skipulags og ráðstöfunar á mikilvægri orkuauðlind þjóðarinnar.“

Nú er okkur sagt, a.m.k. af sumum, að það geti haft alvarlegar afleiðingar ef Alþingi samþykkir ekki undanbragðalaust innleiðingu á þessari reglugerð nr. 713. Það er svolítið óþægilegur tónn í því og svolítið hótanakennt og leiðir hugann í áttina að Kúbu og Norður-Kóreu. (Forseti hringir.) En í öllu falli vil ég leyfa mér að vekja máls á því hér hvort ekki þurfi að endurskoða starfsreglur Alþingis um málsmeðferð þannig að hún flytjist miklu framar í ferlið en nú er, herra forseti.