störf þingsins.
Forseti. Ég ætlaði nú að nýta tíma minn í að tala um allt annað en ég breytti snarlega um skoðun þegar ég hlýddi á ræðu hv. þm. Ólafs Ísleifssonar. Hann kallar eftir umræðum um störf þingsins og þriðja orkupakkann og það er sjálfsagt að verða við því.
Það kom fram á ágætum sameiginlegum fundi utanríkismálanefndar og atvinnuveganefndar í morgun hvernig ferlið hefur verið. Þriðji orkupakkinn var innleiddur í Evrópusambandinu árið 2009 og Íslendingar höfðu færi á að gera athugasemdir fyrir þá innleiðingu, vissulega. Síðan var hann til meðferðar hjá sameiginlegu nefndinni frá 2009–2017. Hv. þm. Ólafur Ísleifsson ætti að vita að þetta hefur komið, fyrir nokkrum árum, fyrir í fastanefndum þingsins. Það eru til bókanir og samþykktir og skoðanir í fundargerðum, t.d. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Íslensk stjórnvöld gerðu ákveðna fyrirvara um ýmislegt í þessari tilskipun en frá árinu 2009–2017 aldrei neina fyrirvara um neitt af því sem hv. þm. Ólafur Ísleifsson og fleiri sem deila hans skoðun hafa hæst um hér í umræðunni nú. Engin ríkisstjórn sem sat á þessum árum gerði fyrirvara og alls ekki ríkisstjórnin sem sat 2013–2016, svo það sé sagt hreint út.
Ég er sammála hv. þingmanni að við eigum að ræða það hvernig við komum fyrr að málum í EES-ferlinu. Það er akkúrat það sem hæstv. ríkisstjórn er að gera. Hún er að setja aukna fjármuni til að sinna hagsmunagæslu Íslands í ESB þannig að við getum fyrr komið okkar athugasemdum á framfæri og reynt að hafa meiri áhrif á málin en við gerum í dag.