störf þingsins.
Herra forseti. Við getum öll verið sammála um að viðskipti við aðrar þjóðir eru okkur nauðsynleg og grundvöllur velsældar okkar. Stór ákvörðun, pólitísk og stefnumarkandi, var tekin árið 1994 þegar Ísland varð aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. Að flestra mati var sú ákvörðun framfaraskref. Á þeim tíma var skoðað vandlega hvort upptaka samningsins bryti stjórnarskrá okkar. Svo var ekki.
Umræðan um þriðja orkupakkann hefur dregið athygli þjóðarinnar að stefnumörkun í orkumálum sem og í utanríkismálum. Borið hefur á miklum ótta við að með því að samþykkja þriðja orkupakkann munum við missa vald yfir auðlindum okkar og hleypa gráðugum einkaaðilum stjórnlaust í þær. Svo er ekki. Reyndar er enginn lögfræðilegur ágreiningur um það. Fólk er einnig hissa á að við ætlum okkur að taka upp reglur sem gilda um evrópskan orkumarkað þó svo að við séum ekki tengd við markaðinn. Ástæðan er sú að við erum aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu og við ákváðum fyrir 25 árum að innleiða evrópskt regluverk og vera þátttakendur í því samstarfi. Sameiginlega EES-nefndin er vettvangur þar sem þjóðir geta aðlagað regluverkið að aðstæðum í heimalandinu. Þar liggur sveigjanleikinn en ekki í því að hafna reglum þegar aðlögun hefur átt sér stað.
Ég var á árlegri ráðstefnu Háskóla Íslands fyrir skömmu um alþjóðamál. Í umræðunni um Brexit kom m.a. fram að algengustu leitarorðin á Google í Bretlandi, degi eftir kosningarnar um Brexit, voru: „Hvað er Evrópusambandið?“ og „Hvers vegna eru Bretar í Evrópusambandinu?“ Við sjáum hvert rangar upplýsingar hafa leitt Breta. Já, í miklar ógöngur sem ekki sér fyrir endann á.
Herra forseti. Það er þess virði að velta aðeins fyrir sér. Rangar upplýsingar geta haft mjög skaðleg áhrif og í raun grafið undan lýðræðinu. Í umræðunni um orkupakkann hefur borið mikið á röngum upplýsingum og maður veltir fyrir sér hvað liggi að baki hjá þeim sem halda röngum upplýsingum á lofti. Vilja þeir aðilar að við segjum upp EES-samningnum og hættum í því samstarfi? Mér þætti ágætt að fá að vita það. Það lægi þá fyrir og við gætum rætt það.