þungunarrof.
Frú forseti. Þegar ég var að taka ákvörðun um hver raunveruleg ábyrgð mín væri í þessu máli, þ.e. sem þingmanns sem er að breyta þessum lögum, hugsaði ég: Réttindi konunnar hljóta alltaf að vera þau að hún hefur rétt til að óska eftir því að lífið í líkama hennar sé fjarlægt, hún á rétt á því. Hvar koma þá inn réttindi eða skylda okkar? Skylda okkar kemur inn ef ríkisvaldið getur haldið þessu lífi á lífi, þá er það ríkisvaldsins að gera það.
Það er það sama og þegar læknar og sérfræðingar segja okkur að mörkin séu 22 vikur. Fyrir þann tíma er fóstur ekki lífvænlegt. Það er það sama með ákvarðanir sem við tökum varðandi fólk sem er heiladautt. Þá eru það aðstandendur sem ákveða hvort taka eigi úr sambandi. Upplýsingarnar frá sérfræðingum segja okkur hvenær fóstrið er lífvænlegt, hvenær halda má lífi í því lífi sem (Forseti hringir.) konan hefur rétt á að láta taka, það eru 22 vikur. Það er það sem ég þurfti að vita til þess að geta tekið þessa ákvörðun. Ég greiði atkvæði með málinu.