149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá 6. þm. Norðvest., Guðjóni S. Brjánssyni, um að hann verði fjarverandi í opinberum erindum á næstunni. Þá hefur borist bréf frá starfandi formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Þórarinn Ingi Pétursson, 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðaust., hafi boðað forföll og muni því víkja af þingi sem varamaður fyrir Þórunni Egilsdóttur.

Í dag, mánudaginn 6. maí, taka því sæti á Alþingi sem varamenn 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Norðvest., Arna Lára Jónsdóttir, og 2. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðaust., Hjálmar Bogi Hafliðason. Þau hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.