149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

Fangelsismálastofnun og tekjur af vinnu fanga.

[15:04]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Ég vil beina fyrirspurn til hæstv. dómsmálaráðherra um tekjur fanga og tekjur Fangelsismálastofnunar af vinnu þeirra. Í svari hæstv. dómsmálaráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Eymarsdóttur, hv. varaþingkonu Pírata, frá 148. löggjafarþingi, um vinnutíma, tekjur og framfærslu fanga er fjallað um meðaltekjur fanga í íslenskum fangelsum. Þar kemur fram að meðaltekjur fanga á mánuði vegna vinnu séu um 20.000 kr. á Litla-Hrauni og á Hólmsheiði en tæplega 50.000 á Sogni, Kvíabryggju og Akureyri.

Samkvæmt reglugerð um þóknun fyrir vinnu og nám og dagpeninga til fanga eiga fangar rétt á launum fyrir störf sín, 415 kr. á klukkustund. Þeir fangar sem ekki fá vinnu fá hins vegar dagpeninga upp á 630 kr. á dag.

Nú fyrir stuttu svaraði ráðherra annarri fyrirspurn frá áðurnefndum hv. varaþingmanni Pírata um það hverjar tekjur og gjöld Fangelsismálastofnunar væru vegna vinnu afplánunarfanga. Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun er ekki hægt að sundurliða sérstaklega gjöld vegna vinnu afplánunarfanga. Margir þættir væru ekki skilgreindir sér. Þannig væru laun fanga hluti af heildarrekstrarkostnaði fangelsanna og væri ýmis afleiddur kostnaður hluti af heildarrekstrarkostnaði.

Ekki hefur verið birtur ársreikningur fyrir Fangelsismálastofnun síðan árið 2016, en í fjárlögum ársins 2019 er gert ráð fyrir 132,6 millj. kr. rekstrartekjum fyrir Fangelsismálastofnun. Mér þykir augljóst, herra forseti, í ljósi þess um hve miklar tekjur er að ræða, að eitthvert yfirlit hljóti að vera til yfir það hvaða hluti tekna kemur til vegna vinnu fanga, jafnvel þótt ekkert yfirlit sé til yfir kostnaðinn vegna þess. Í stuttu máli vitum við hvorki hversu miklar tekjur Fangelsismálastofnun hefur af vinnu fanga né heldur hversu mikinn kostnað hún hefur vegna vinnu fanga.

Ég spyr hæstv. ráðherra hvort það væri ekki eðlilegt að þessar upplýsingar lægju fyrir. Og í öðru lagi hvort ekki sé nauðsynlegt að tekjur fanga vegna vinnu þeirra séu í einhverju samræmi við þær tekjur sem Fangelsismálastofnun, og þar með íslenska ríkið, hefur af vinnu þeirra.