Fangelsismálastofnun og tekjur af vinnu fanga.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Ég vil fylgja aðeins betur eftir síðari spurningu minni sem varðar launin sem fangar fá. Ég spurði hvort hæstv. ráðherra þætti ekki eðlilegt eða nauðsynlegt að tekjur fanga vegna vinnu sinnar væru í einhverju samræmi við þær tekjur sem Fangelsismálastofnun og þar með íslenska ríkið hefur vegna vinnu þeirra.
Ástæða þess að ég spyr er náttúrlega sú að reglugerðin segir fyrir um að fyrir öll störf fanga skuli greiða 415 kr. á klukkustund. Það er óháð frammistöðu og það er óháð þeim tekjum sem Fangelsismálastofnun hefur af þeirri vinnu. Ég velti fyrir mér — þegar fangar upplifa að þeir hafa föst laun óháð frammistöðu og óháð þeim tekjum sem þeir afla fangelsinu — hvers konar betrunarstefnu við rekum. Við segjum þeim að alveg sama hve vel þeir standi sig fái þeir laun undir vinnuskólalaunum unglinga fyrir það.